Bærinn minn

Mosfellsbær - bær í sveit

Mosfellsbær er bæjarfélag um 8.600 íbúa sem er um 220 ferkílómetrar að stærð í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Byggðarþróun hefur verið ör síðustu árin og sífellt fleiri hafa sótt í þá góðu blöndu borgarsamfélags og sveitar sem þar er að finna. Skipulag tekur mið af fjölbreyttri og fallegri náttúru bæjarfélagsins.  Þar eru víðáttumikil náttúruleg svæði og einstakir útivistarmöguleikar í skjóli fella, heiða, vatna og strandlengju.

Kort Af Mosfellsbæ (.pdf - 3.1mb)

Mosfellsbær státar af talsverðri sérstöðu hvað snertir fjölbreytileika.  Bæjarfélagið samanstendur af þéttbýliskjarna við Leirvog þar sem boðið er uppá nauðsynlega þjónustu, auk víðáttumikillar sveitar, svo sem í Mosfellsdal. 

Mosfellingar kunna vel að meta umhverfi sitt og eru almennt mikið útivistarfólk. Hestamennska er áberandi þáttur í daglegu lífi bæjarbúa, enda liggja reiðleiðir til allra átta. Gönguleiðir eru góðar allt frá fjöru til fjalla og óvíða er aðstaða til íþróttaiðkana betri en í Mosfellsbæ.  Tveir golfvellir eru í Mosfellsbæ, ásamt góðri aðstöðu fyrir fuglaskoðun í Leirvogi og við ósa Varmár og Köldukvíslar.

Útivistarkort (.pdf - 1.8mb)

Náttúruperlur og sögulegar minjar eru víða í Mosfellsbæ, má þar nefna Tröllafoss, Helgufoss, Varmá, Mosfellskirkju og fornleifauppgröft við Hrísbrú í Mosfellsdal. Atvinnusaga bæjarins er einnig á margan hátt sérstök og má þar nefna viðamikla ullarvinnslu og kjúklingarækt sem starfsrækt hefur verið í bænum um langt skeið. 

Menning hefur um langt árabil skipað stóran sess í sögu Mosfellsbæjar, þar sem helst má nefna búsetu Nóbelsskáldsins Halldórs Kiljan Laxness að Gljúfrasteini í Mosfellsdal, menningarminjar í Álafosskvos og fjölbreytt menningarlíf.

Undir þessum flipa, Bærinn minn, geturðu nálgast upplýsingar um stjórnsýslu Mosfellsbæjar, starfsmenn og stofnanir bæjarins sem og kjörna fulltrúa og nefndir. Einnig eru hér upplýsingar um stefnumótun Mosfellsbæjar sem unnin var á síðasta ári þar sem m.a. var mótuð framtíðarsýn Mosfellsbæjar, gildi og hlutverk.

Hér má einnig finna upplýsingar um starfandi fyrirtæki í Mosfellsbæ og þá þjónustu sem er í boði á vegum einkaaðila í bæjarfélaginu. Hér eru einnig allar helstu upplýsingar um bæjarfélagið, fyrir almenning og fjölmiðla, sem og myndir, bæjarmerki og fréttatilkynningar.