Vatnsveita - ýmis gjöld
Nr. 1033 16. desember 2009
Gjaldskrá
Vatnsveitu Mosfellsbæjar
1. gr.
Vatnsgjald
Almennt vatnsgjald skal vera 0,1% af fasteignamati mannvirkja og lóða. Gjalddagar almenns vatnsgjalds eru þeir sömu og bæjarstjórn ákveður hverju sinni vegna álagðra fasteignagjalda í sveitarfélaginu.
2. gr.
Heimæðagjöld
Gjald vegna heimæðagjalda skal vera sem hér segir.
|
32mm rör
|
129.818,-
|
án vsk.
|
|
40mm rör
|
172.915,-
|
án vsk.
|
|
50mm rör
|
248.823,-
|
án vsk.
|
|
63mm rör
|
476.015,-
|
án vsk.
|
|
75mm rör
|
681.026,-
|
án vsk.
|
|
90mm rör
|
846.244,-
|
án vsk.
|
|
110mm rör
|
942.359,-
|
án vsk
|
|
140mm rör
|
1.056.878,-
|
án vsk
|
|
180mm rör
|
1.268.846,-
|
án vsk
|
Stærð heimæðar er ákvörðuð af Vatnsveitu Mosfellsbæjar í samræmi við ósk kaupenda um vatnsmagn í umsókn. Þar sem lengd heimæðar er minni en 50 metrar gildir ofangreind verðskrá. Fyrir hvern metra umfram 50 metra er heimilt að innheimta 1% af heimæðagjöldum viðkomandi málstærðar. Óski húseigandi eftir færslu heimæða að nýjum tengipunkt greiðir hann heimæðagjöld að nýju.
Gjald vegna tengingar vinnuvatns er kr. 63.400,- án vsk.
3. gr.
Mælagjöld
Gjald vegna rennslismæla skal vera sem hér segir.
stærð mælis: verð kr/ dag:
15 mm 23,58
20 mm 25,93
25 mm 33,48
32 mm 37,47
40 mm 45,12
50 mm 55,17
80 mm 148,63
100 mm 152,17
4. gr.
Graftargjöld
Gjald vegna ídráttarröra, fleyginga og sprenginga.
Vanti ídráttarrör eða ídráttarrör reynist ónothæft greiðist vegna skurðgraftar
kr/lengdarmetra 7.324,-
Reynist nauðsynlegt að fleyga eða sprengja klöpp eða að frost er í jörðu bætist eftirfarandi kostnaður við skurðgröft sbr. 1. mgr., sem innheimtist eftirá.
Klaki/ klöpp: dýpt cm: kr/lengdarmetra:
klaki/ klöpp < 30 2.338,-
klaki/ klöpp > 30 4.719,-
5. gr.
Aukavatnsgjald
Aukavatnsgjald til stórnotenda er 26,40 kr/m³
6. gr.
Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af bæjarstjórn Mosfellsbæjar er sett með stoð í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur og 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga.
Mosfellsbæ, 16. desember 2009.
Stefán Ó. Jónsson bæjarritari.
__________
B-deild – Útgáfud.: 23. desember 2009