
Hætt verður við fyrirhugað tilraunaverkefni um skólaakstur milli Mosfellsbæjar og Borgarholtsskóla gegn gjaldi á haustönn. Í bréfi til nemenda kom fram að nauðsynlegur lágmarksfjöldi þeirra sem myndu greiða fyrir þjónustuna væri 20. Þeim fjölda yrði að ná fyrir 1. september. Ekki hefur náðst upp í lágmarksfjölda og því verður ekki af verkefninu nú á haustönn. Nemendum er bent á leiðarkerfi Strætó,
www.straeto.is.
Nánari upplýsingar veitir Þjónustuver Mosfellsbæjar í s. 525 6700 eða í netfangið
mos[hja]mos.is