Lesa frétt

1.2.2012

Lokað verður vegna vegaframkvæmda í Mosfellsbæ

Göngubrú_afstaða_minni

Unnið er við að fjarlægja undirslátt undan brúargólfi göngubrúar yfir Vesturlandsveg við Krikahverfi í Mosfellsbæ í dag og á morgun. Vegna þessa þarf að loka tímabundið fyrir umferð eftir Vesturlandsvegi undir brúna.

Lokað verður annarsvegar við hringtorg að Lágafelli og hins vegar við hringtorg við Hafravatnsveg. Í dag miðvikudaginn 1. febrúar  verður akbraut fyrir umferð til Reykjavíkur lokað  frá kl. 13:00 til kl. 16:00 og á morgun fimmtudag 2. febrúar verður akbraut fyrir umferð frá Reykjavík lokað frá kl. 13:00 til kl. 16:00.

Á meðan þessar lokanir vara er notast við hjáleið um Bjarkarholt - Háholt, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.