Dagforeldrar


Skólafulltrúi hefur umsjón og eftirlit með dagforeldrum bæjarins, veitir þeim ráðgjöf og sér um leyfisveitingu til þeirra, svo og umsjón með gæsluvelli. Skólafulltrúi er ráðgefandi við bæjaryfirvöld um leikskólamál, sinnir erindum og hefur með höndum umsýslu og eftirlit er lýtur að leikskólum, dagforeldrum  og gæsluleikvelli . 

Daggæsla í heimahúsum.
Um daggæslu barna í heimahúsum gildir reglugerð nr. 907/2005, sem sett var með heimild í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Fræðslunefnd veitir leyfi til gæslu barna í heimahúsum í Mosfellsbæ og hefur eftirlit með starfseminni.  Þeir einir sem hafa leyfi fræðslunefndar til slíkrar starfsemi hafa heimilid til að gæta barna og taka greiðslu fyrir.
Leikskólafulltrúi er starfsmaður fæðslunefndar.

Lögð hefur verið áhersla á að dagmæður séu starfandi í öllum hverfum bæjarins.

Hér vinstra megin má meðal annars sjá   lista yfir starfandi dagforeldra í Mosfellsbæ og upplýsingar um niðurgreiðslur gjalda v/vistunar barna hjá dagforeldrum

Þjónustusamningur við dagforeldra (.pdf - 22kb)

Við upphaf vistunar barns hjá dagforeldri sem er með þjónustusamning þá er gerður þjónustusamningur um vistun barns hjá dagforeldri (.pdf - 22kb) milli foreldra, dagforeldris og daggæslufulltrúa f.h. Mosfellsbæjar.

Í samningnum kemur fram hvenær barn byrjar vistun, vistunartíminn, mánaðargjald foreldra og niðurgreiðsla frá Mosfellsbæ til dagforeldris. Uppsögn á samningnum skal gerð með mánaðarfyrirvara.

Nefndir:

Fræðslunefnd fer með yfirumsjón daggæslu í heimahúsi í umboði bæjarstjórnar

Hér fyrir neðan má fletta niðurstöðum úr viðhorfskönnun meðal foreldra um vistun barns hjá dagforeldri: