Hlutverk Skólaskrifstofu:
Skólaskrifstofa starfar á fræðslu- og menningarsviði Mosfellsbæjar. Skólaskrifstofa annast stjórnsýslu, rekstur og þjónustu vegna uppeldis- og menntamála bæjarfélagsins. Skólaskrifstofa fylgist með framkvæmd skólahalds og hefur yfirumsjón með áætlanagerð og almennt eftirlit með skólastarfi. Skólaskrifstofa sér leik- og grunnskólum fyrir sérfræðilegri ráðgjöf skv. lögum og reglugerðum og hvetur til umbóta og framþróunar í skólastarfi. Starfsmenn skólaskrifstofu eru: Björn Þráinn Þórðarson, forstöðumaður Gunnhildur María Sæmundsdóttir. skólafulltrúi Guðríður Haraldsdóttir, sálfræðingur Hulda Sólrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur Ragnheiður S Jóhannsdóttir, kennsluráðgjafi Magnea Steinunn Ingimundardóttir, verkefnastjóri