Mosfellsbær státar af fjölbreyttu íþróttalífi. Hér er hægt að leggja stund á flestar íþróttagreinar í einum sex íþróttafélögum. Stærst þeirra er Ungmennafélagið Afturelding sem hefur mikinn fjölda deilda innan sinna vébanda.
Hestamannafélagið Hörður heldur uppi öflugu starfi fyrir hestaáhugamenn á öllum aldri.
Tveir golfklúbbar eru starfandi í Mosfellsbæ, Golfklúbburinn Kjölur og Golfklúbburinn Bakkakot.
MotoMos er akstursíþróttafélag með frábæra aðstöðu fyrir akstursíþróttafólk á Tungumelum.
Tvær sundlaugar og íþróttamiðstöðvar eru starfandi í Mosfellsbæ, Íþróttamiðstöðin að Varmá og Íþróttamiðstöðin Lágafell. Í þeim eru sjálfstætt starfandi líkamsræktarstöðvar, World Class og Elding.