Í gegnum tíðina hefur bæjarfélaginu Mosfellsbæ áskotnast fjöldi
listaverka af ýmsum toga sem eiga það sameiginlegt að ljá bænum
líflegra og vistlegra yfirbragð.
Þessi verk prýða húsakost og
salarkynni bæjarfélagsins, starfsfólki og gestum til yndis og ánægju.
Þeir sem kunna að meta góð listaverk vita að eitt verk getur vakið
tilfinningar og spurningar, sagt sögu og varpað nýju ljósi á þekktar
staðreyndir. Listin vekur áhorfandann til umhugsunar og auðgar andann.
Í
Álafosskvos hafa fjölmargir listamenn vinnustofur í húsnæði sem áður
tilheyrði ullarverksmiðjunni Álafossi og í aðliggjandi húsum;
Mosfellsbær er því í hópi fárra bæjarfélaga á landinu sem geta státað
af raunverulegu listamannahverfi. Víðar í Mosfellsbæ eru listamenn
einnig með vinnustofur og sýningaraðstöðu.
Lengi hefur skort á að
upplýsingar um listaverk í eigu Mosfellsbæjar og höfunda þeirra hafi
verið aðgengileg þeim er áhuga hafa. Ef til vill hefur þar ekki síst
skort hentugan miðil. Hér hefur verið ráðin bót á því vandamáli og er
þessi vefur hluti af viðleitni bæjarfélagsins til að kynna þau
listaverk sem því tilheyra og kynna lítillega höfunda verkanna þar sem
kostur er.
Sæunn Ólafsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur
vann á árunum 2003 sem nemi við Háskóla Íslands að skráningu á
listaverkum í eigu Mosfellsbæjar. Skráningin er byggð á samantekt sem
Bjarki Bjarnason vann fyrir menningarmálanefnd Mosfellsbæjar árið 1999
um listaverk í eigu bæjarins. Bjarki tók einnig myndir af
listaverkunum. Nú á haustdögum 2005 hefur Sæunn uppfært vefinn,
lagfært og tekið nýjar ljósmyndir af sumum verkanna.
Bæjarlistamenn Mosfellsbæjar frá árinu 1995
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar útnefnir ár hvert bæjarlistamann Mosfellsbæjar. Bæjarlistamaður hlýtur styrk frá Mosfellsbæ. Bæjarlistamaður kynnir sig og verk sín innan Mosfellsbæjar á því ári sem hann er tilnefndur.
Hér má finna upplýsingar um alla bæjarlistamenn Mosfellsbæjar.
Aðrir áhugaverðir tenglar:
Menningarnet Íslands
Samband íslenskra myndlistarmanna
Upplýsingamiðstöð myndlistar