Mosfellingur ársins

Bæjarblaðið Mosfellingur hefur staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins

Hanna Símonarsdóttir valin Mosfellingur ársins

mosfellingur ársins 2011Fótboltamamman og athafnakonan Hanna Símonardóttir hefur verið valin Mosfellingur ársins 2011 af bæjarblaðinu Mosfellingi. Hanna hefur um árabil verið ein aðal driffjöðurin í starfi Aftureldingar. Hún er ma. upphafsmaður risa þorrablóts Aftureldingar í þeirri mynd sem það er í dag auk þess sem hún á veg og vanda að knattspyrnuskóla Aftureldingar og  Liverpool. „Lífið er fótbolti,“ segir Hanna Símonardóttir sem tileinkar Aftureldingu nafnbótina eftir 14 ára starf sem sjálfboðaliði í þágu félagsins.
Mitt hjartans mál er að byggt verði knattspyrnuhús í Mosfellsbæ,” segir Hanna Símonardóttir sem er hvergi nærri hætt að láta got að sér leiða fyrir Aftureldingu og samfélagið í Mosfellsbæ.

Mosfellingur kom út í dag, 12. janúar, og er hægt að lesa á www.mosfellingur.is

 

Bæjarblaðið Mosfellingur hefur staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins síðastliðin ár.
Áður hafa hlotið nafnbótina:

2005 Sigursteinn Pálsson
2006 Hjalti Úrsus Árnason
2007 Jóhann Ingi Guðbergsson
2008 Albert Rútsson
2009 Embla Ágústsdóttir
2010 Steinþór Hróar Steinþórsson
2011
Hanna Símonardóttir