Mosfellsbær er mikill suðupottur menningar og listar. Í sveitarfélaginu býr og starfar fjöldi listamanna og bjóða nokkrir þeirra upp á aðgang að vinnustofum sínum þar sem jafnframt eru listagallerí.
Listasalur Mosfellsbæjar er rekinn á vegum sveitarfélagsins og þar eru reglulegar listsýningar haldnar allt árið um kring.
Eitt merkasta safnið í Mosefellsbæ er
Gljúfrasteinn sem var
heimili og vinnustaður Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar
aldar skeið en var opnað almenningi sem safn í september 2004.
Hér til hægri er hægt að nálgast nánari upplýsingar um söfn og gallerí í Mosfellsbæ.