Í túninu heimaBæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, er haldin síðustu helgina í ágúst ár hvert. Sannkölluð fjölskylduhátíð sem stendur í þrjá daga og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Fjölbreyttir viðburðir eru í boði um allan bæ.
MenningarvorMenningarvor í Mosfellsbæ hefur verið haldið undanfarin tvö ár. Í boði eru fjölbreyttir menningarviðburðir haldnir um allan bæ á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum í maí.
Hátíðisdagar Ein fjölmennasta hátíðin sem haldin er í Mosfellsbæ ár hvert er Þrettándagleðin. Sumardagurinn fyrsti skipar fastan sess í hátíðarhöldum í sveitarfélaginu og á þjóðhátíðardaginn 17. júní er mikið um dýrðir.
HeilsuvikaHeilsuvika Mosfellsbæjar fer fram í byrjun má ár hvert undir undir yfirskriftinni "Förum heilbrigð inn í sumarið". Heilsuvikunni lýkur á laugardegi með heilmikilli heilsuhátíð við Íþróttamiðstöðina að Varmá.
Brosandi bær - Sumartorg Mosfellsbær stendur fyrir vikulegum viðburðum á Miðbæjartorgi á sumrin sem fær þá heitið Sumartorg. Viðburðirnir eru haldnir undir yfirskriftinni Brosandi bær.
MarkaðirFrá miðjum júlí og fram á haustið eru haldnir vinsælir bændamarkaðir að Mosskógum í Mosfellsdal. Þá er grænmetismarkaður að Reykjum opinn alla daga frá því að fyrsta uppskeran er tekin upp.