Laxnessvefur
Skáldið og sveitin
Tengsl Halldórs Laxness við Mosfellssveit og -bæ
 |
| Halldór Laxness les úr verkum sínum á 40 ára afmæli UMFA. Myndin er tekin í Brúarlandi árið 1949.
|
Halldór Laxness er tengdur Mosfellssveit og -bæ órofa böndum. Hann ólst
upp að Laxnesi í Mosfellsdal, kenndi sig alla tíð við bernskustöðvar
sínar og settist að í dalnum sem fulltíða maður. Hann sá bernskuár sín
í dalnum í hillingum og í nokkrum bóka sinna sækir hann efniviðinn í
Mosfellssveit, einkum í Innansveitarkroniku og endurminningabókinni Í
túninu heima.
Á Laxnessvefnum er
gert grein fyrir tengslum Halldórs við byggðarlagið sem skipta miklu
máli til að átta sig á rithöfundinum og Mosfellingnum Halldóri Laxness.
Ljósmyndir úr ýmsum áttum og skrif Halldórs og annarra verða notuð til
að bregða upp mynd af skáldinu og sveitinni á fyrri tíð.
Bjarki Bjarnason ritaði texta og sá um myndaval.