Skólastjóri : Þrúður Hjelm - thrudur[hja]krikaskoli.is
Aðsetur: Sunnukriki 1, Mosfellsbæ
Sími: 578 3400
Skrifstofa opin: 8:00 - 14:00
Nemendafjöldi : 110
Aldur : 2ja til 7 ára
Netfang: krikaskoli[hja]krikaskoli.is
Veffang: www.krikaskoli.is
Krikaskóli er samþættur leik- og grunnskóli fyrir börn á aldrinum tveggja til níu ára. Skólinn hóf starfsemi í júni 2008 og þá í Helgafellslandi en flutti síðan að Sunnukrika 1 vorið 2010
Hugmyndafræði skólans tekur mið af hugsmíðahyggjunni þar sem lögð er áhersla á að barnið sé virkur og skapandi þátttakandi í námi og starfi. Börnin fá tækifæri til rannsaka og uppgötva og fást við skapandi verkefni sem reynir á sjálfstæði og sköpun. Leitast er við að skapa börnunum aðstæður þar sem þau fást við raunveruleg verkefni í tengslum við það umhverfi og samfélag sem þau lifa í.
Lögð er áhersla á umhyggju og lýðræðislega skólamenningu, einstaklingsmiðað nám, samþættingu námsgreina og námssviða, útikennslu, frjálsan og skipulagðan leik, samþættingu aldurshópa, og heildags skóla með samþættingu skólastarfs og tómstunda.
Gjaldskrá mötuneyta grunnskólanna