Allt hefur áhrif
Allt hefur áhrif - einkum við sjálf
Mosfellsbær var fyrst sveitarfélaga til að samþykkja aðgerðaráætlun verkefnisins „Allt hefur áhrif einkum við sjálf“. Verkefnið er þróunarverkefni Lýðheilsustöðvar og er unnið í samvinnu við 25 sveitarfélög í landinu.
Markmiðið með verkefninu er að bæta lífshætti barna og fjölskyldna þeirra með áherslu á hreyfingu og góða næringu.
Stofnaður var stýrihópur í Mosfellsbæ árið 2005 sem hefur verið að vinna að markmiðssetningu og aðgerðaráætlun vegna verkefnisins í Mosfellsbæ til næstu tveggja ára. Áætlað er að verkefnið verði í gangi á landsvísu til 2010.
Bæjarstjórn samþykkti aðgerðaráætlunina á fundi sínum þann 1. nóvember 2006.
Aðgerðaráætlunina í heild má skoða sem pdf skjal hér að neðan.
Allt hefur áhrif(.pdf - 94kb)