Samkeppni

Framundan eru spennandi tímar í heilsutengdri þjónustu í Mosfellsbæ. Stofnaður hefur verið heilsuklasi í Mosfellsbæ sem hefur það að markmiði að Mosfellsbær verði þekktur sem miðstöð heilsueflingar á Íslandi.

Stofnendur klasans starfa flestir í heilsutengdri þjónustu í Mosfellsbæ og vilja auka og styrkja samstarf sín á milli.  Þess er vænst að samstarfið stuðli  að eflingu og uppbyggingu á starfsemi á sviði lýðheilsu, heilsueflingar, endurhæfingar og heilsuferðaþjónustu í Mosfellsbæ.

Heilsuklasinn mun því koma öllum Mosfellingum að gagni. Eitt helsta markmið klasans er að fjölga störfum í heilsutengdri þjónustu um helming, sem mun væntanlega hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Stefnt er á að þessi starfsemi verði jafnframt grunnstoð undir aðra starfsemi svo sem veitingarekstur,  matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu og fleira í Mosfellsbæ.

Hvað á heilsuklasinn í Mosfellsbæ að heita?

Taktu þátt í samkeppni um nafn á heilsuklasa í Mosfellsbæ.

Sendu póst með tillögu þinni á sigridurdogg@mos.is