REGLUGERÐ
um dagvist aldraðra.
1. gr.
Dagvist er stuðningsúrræði fyrir aldraða sem búa í
heimahúsum. Dvöl á dagvist er tímabundin, ýmist daglega eða nokkra daga
í viku.
Dagvist aldraðra telst sú starfsemi sem býður a.m.k.
upp á eftirtalda þjónustu: flutningsþjónustu að og frá heimili
einstaklings, tómstundaiðju, aðstöðu til léttra líkamsæfinga, fæði,
hvíldaraðstöðu og aðstoð við böðun.
Dagvist má reka sjálfstætt eða í tengslum við aðra starfsemi.
2. gr.
Heilbrigðisráðherra veitir dagvistum aldraðra rekstrarleyfi.
Heilbrigðisráðherra getur, ef sérstaklega stendur á,
vent dagvist skilyrt rekstrarleyfi. Skilyrt rekstrarleyfi hefur það í
för með sér að Tryggingastofnun ríkisins greiðir ekki kostnað vegna
dagvistarinnar. Í þeim tilvikum skulu dagvistargestir greiða sjálfir
allan kostnað vegna dagvistarinnar.
Dagvistir aldraðra sem hafa rekstrarleyfi við
gildistöku reglugerðar þessarar eru taldar upp í fylgiskjali. Ný
rekstrarleyfi og breytingar á rekstrarleyfum vegna dagvista aldraðra
skal auglýsa í Stjórnartíðindum.
3. gr.
Daggjaldanefnd sjúkrahúsa, sbr. 46. gr. laga um
almannatryggingar nr. 67/1971 með síðari breytingum, skal ákveða
daggjald á dagvist aldraðra annarra en þeirra sem hafa skilyrt
rekstrarleyfi eða þeirra sem eru í starfstengslum við sjúkrastofnun sem
rekin er með beinum fjárframlögum úr ríkissjóði skv. fjárlögum hverju
sinni. Við ákvörðun daggjalds skal taka tillit til kostnaðar vegna
ferða að og frá dagvist.
4. gr.
Stjórnendur dagvistar innheimta hjá dagvistargesti
500 krónur fyrir hvern dvalardag. Stjórnendur ákveða hversu oft í
mánuði gjaldið er innheimt. Mánaðarlegt gjald má þó aldrei verða hærra
en sem nemur einstaklingsgrunnlífeyri Tryggingastofnunar ríkisins.
Noti dagvistargestur flutningsþjónustu er greiðsla vegna hennar innifalin í gjaldinu sem harm greiðir fyrir hvern dvalardag.
Í lok hvers mánaðar innheimta stjórnendur dagvistar
hjá Tryggingastofnun ríkisins mismun daggjalds á dagvist, sbr. 3. gr.
og þeirrar fjárhæðar sem innheimta skal hjá dagvistargesti.
Fjárhæð sú sem dagvistargestur greiðir vegna dagvistar hækkar um leið og í samræmi við hækkanir bóta almannatrygginga.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 30. gr. laga um málefni aldraðra nr. 82/1989, öðlast gildi 1. febrúar 1990.
Reglugerð þessa skal endurskoða eigi síðar en tveimur árum frá gildistöku hennar
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 17. janúar 1990.
Guðmundur Bjarnason.
Páll Sigurðsson.