Elli- og örorkulífeyrisþegar - fasteignagjöld

Reglur um afslátt af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega

1. gr.
Með reglum þessum veitir bæjarstjórn Mosfellsbæjar tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum afslátt af fasteignaskatti og holræsagjaldi skv. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga og 3. mgr. a-liðar 8. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

2. gr.
Til að geta átt rétt á afslætti þarf greiðandi fasteignagjalda uppfylla annað eftirfarandi:
a) að vera ellilífeyrisþegi, þ.e.a.s. hafa orðið 67 ára næsta ár á undan álagningarári.
eða
b) að vera örorkulífeyrisþegi, þ.e.a.s. hafa a.m.k. 75% örorku næsta ár á undan álagningarári. Einnig geta þeir sem eru úrskurðaðir 75% öryrkjar á álagningarári geta sótt um hlutfallslega lækkun frá því að örorkumat tók gildi.

3. gr.
Til að geta átt rétt á afslætti þarf fasteignin að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) að vera íbúðarhúsnæði afsláttarþega þar sem hann hefur búsetu og á lögheimili. Einnig getur afsláttarþegi sem fær vistun á stofnun sótt um að njóta afsláttar það ár og næsta ár á eftir, enda hafi viðkomandi ekki leigutekjur af húsnæðinu.
og
a) að vera þinglýst eign afsláttarþega, hafa A skráningu í Landsskrá fasteigna og vera staðsett á íbúðarsvæði skv. skipulagi.

4. gr.
Til að geta átt rétt á afslætti þarf fasteignin að uppfylla annað eftirfarandi:
a) að vera þinglýst eign afsláttarþega.
eða
b) að geta gefið afsláttarþega rétt á vaxtabótum skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekju- og eignaskatt. Ákvæði þetta vísar m.a. til þeirra sem búa í íbúðum á vegum Búseta og Eirar.

5. gr.
Þegar um hjón eða sambúðaraðila er að ræða nægir að annað hjóna eða sambúðaraðili fullnægi skilyrðum sem veita rétt til afsláttar sbr. 2. grein. Falli annar aðilinn frá nýtur eftirlifandi óbreytts afsláttar út árið sem fráfallið átti sér stað á. Komi til hjóna- eða sambúðarslita skal fjárhæð afsláttar haldast óbreytt út viðkomandi álagningarár sé eignin í eigu annars eða beggja.

6. gr.
Afslátturinn skal reiknast af fasteignaskatti og holræsagjaldi og ræðst prósenta afsláttar af tekjum næsta árs á undan álagningarári eins og þær koma fram á skattframtali. Til tekna teljast  tekjur sem mynda stofn til tekju- og útsvarsstofns að viðbættum fjármagnstekjum.

7. gr.
Framkvæmd útreiknings afsláttar fer þannig fram að við álagningu fasteignagjalda í upphafi árs skal afsláttur reiknaður til bráðabirgða til þeirra sem áttu rétt á, eða hefðu átt rétt á, afslætti árið áður. Að hausti þegar álagning skattstjóra hefur farið fram skal afsláttur endurreiknaður miðað við reglur þessar og samþykkt tekjuviðmið afsláttar. Of- eða vanreiknaður afsláttur skal dreifast jafnt á eftirlifandi gjalddaga fasteignagjalda.

8. gr.
Fjármáladeild Mosfellsbæjar ákvarðar afslætti fasteignagjalda í samræmi við reglur þessar. Rísi ágreiningur um túlkun reglna eða afgreiðslu mála skal málinu vísað til bæjarráðs.

9. gr.
Tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2010 eru sem hér segir:  

2010

Tekjur einstaklinga á árinu 2009

 

2010

Tekjur hjóna á árinu 2009

Afsláttur

Frá

Til

 

Afsláttur

Frá

Til

100%

0

2.331.999

 

100%

0

3.264.999

80%

2.332.000

2.565.999

 

80%

3.265.000

3.591.999

60%

2.566.000

2.796.999

 

60%

3.592.000

3.914.999

40%

2.797.000

3.019.999

 

40%

3.915.000

4.227.999

20%

3.020.000

3.231.999

 

20%

4.228.000

4.523.999

10. gr.
Reglur þessar taka gildi frá 1. janúar 2010.