Félagsleg heimaþjónusta

Reglur um félagslega heimaþjónustu í Mosfellsbæ

I: Kafli
Markmið, hlutverk og skipulag félagslegrar heimaþjónustu

1. gr.
Markmið
Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að efla þjónustuþega til sjálfshjálpar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimahúsi, við sem eðlilegastar aðstæður.
Starfsmenn hafa við mat á þjónustuþörf ávallt að leiðarljósi getu og færni umsækjanda sem og annarra heimilismanna.

2. gr.
Hlutverk
Hlutverk félagslegrar heimaþjónustu er að veita:
• aðstoð við heimilishald, sjá nánari skilgreiningu í samningi um heimaþjónustu
• aðstoð við persónulega umhirðu, sem ekki er í verkahring heimahjúkrunar
• félagslegan stuðning, t.d. með innliti og stuttri viðveru
• aðstoð við umönnun barna og ungmenna með hliðsjón af aðstæðum þegar um erfiðar fjölskylduaðstæður er að ræða. Sbr. lög nr. 125/1999 um málefni aldraðra gr. 13, lög nr. 59/1992 um málefni fatlaðra gr. 8, lög nr. 58/1992 gr. 21 og lög nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga VII. kafli.

3. gr.
Réttur til félagslegrar heimaþjónustu
Rétt til félagslegrar heimaþjónustu eiga þeir einstaklingar sem búa í heimahúsum og geta ekki séð hjálparlaust, eða með aðstoð annarra heimilismanna, um eftirfarandi;
 heimilishald
 persónulega umhirðu vegna skertrar getu.
Einstaklingar er sökum fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda, barnsburðar eða fötlunar geta ekki sinnt heimilishaldi eiga rétt á heimaþjónustu.

4. gr.
Stjórn og yfirumsjón
Fjölskyldunefnd fer með stjórn félagslegrar heimaþjónustu á vegum Mosfellsbæjar. Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með félagslegri heimaþjónustu. Félagsráðgjafi hefur faglega ábyrgð á þjónustunni þ.m.t. mat á þjónustuþörf. Eir, hjúkrunarheimili annast framkvæmd og daglega stjórnun þjónustunnar samkvæmt þjónustusamningi við Mosfellsbæ.

II. Kafli
Framkvæmd þjónustunnar
5. gr.
Umsókn um félagslega heimaþjónustu
Umsókn um félagslega heimaþjónustu skal vera skrifleg eða á rafrænum umsóknum, sem nálgast má á heimasíðu Mosfellsbæjar (www.mos.is). Félagsráðgjafi metur þjónustuþörf umsækjanda. Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um umsækjanda sem og maka ef það á við, upplýsingar sem óskað er eftir eru m.a. um persónulegar aðstæður, lögheimili og yfirlit yfir tekjur. Þá skal umsækjandi jafnframt leggja fram:
• ,Vottorð sérfræðings sem staðfestir þörf umsækjanda fyrir þjónustu sbr. 3. gr.
• Yfirlit yfir greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, þegar það á við.
• Í tilvikum þar sem umsækjandi óskar eftir ívilnum vegna greiðslu á gjaldi vegna þjónustunnar skal hann leggja fram staðfest afrit skattframtals. Umsækjandi getur veitt öðrum skriflegt umboð til að sækja um fyrir sína hönd.
Í sérstökum tilfellum og við endurnýjun umsóknar getur félagsráðgjafi aflað þessara gagna skriflega eða með símatali við sérfræðing með samþykki umsækjanda.

6. gr.
Mat á þörf fyrir þjónustu
Þjónustuþörf skal metin í hverju einstöku tilviki og leitast skal við að veita þá þjónustu sem viðkomandi eða aðrir heimilismenn eru ekki færir um að annast sjálfir. Í sérstökum tilfellum svo sem þegar um er að ræða tímabundin veikindi eða önnur óvænt áföll er heimilt að samþykkja félagslega heimaþjónustu tímabundið. Þjónustan skal þá samþykkt í þrjá mánuði í senn Ef óskað er eftir félagslegri heimaþjónustu umfram 20 klst. í mánuði skal umsóknin lögð fyrir fjölskyldunefnd sem tekur afstöðu til umsóknarinnar. Almenn heimaþjónusta er veit aðra hverja viku, en í undantekninga tilvikum kemur til greina tíðari þjónusta.

7. gr.
Samstarf og þjónustusamningur
Félagsráðgjafi metur þjónustuþörf og leggur umsókn og önnur gögn ásamt greinargerð fyrir trúnaðarmálafund fjölskyldudeildar þar sem fjallað er um umsóknina. Á fundinum er umsóknin samþykkt eða henni synjað. Forstöðumaður félagslegrar heimaþjónustu á vegum Eirar, hjúkrunarheimilis gengur frá samningi milli þjónustuþega og starfsmanns, þar sem fram kemur ósk þjónustuþega um þjónustu.
Við framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu skal leitast við að skipuleggja og samhæfa þjónustuna annarri þjónustu sem viðkomandi nýtur s.s. frá heilsugæslu eða öðrum sjúkra-og heilbrigðisstofnunum. Í slíkum tilvikum skal ætíð liggja fyrir samþykki þjónustuþega.

8. gr.
Gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu
Fyrir félagslega heimaþjónustu skal greitt samkvæmt gjaldskrá sem bæjarstjórn Mosfellsbæjar setur fram að fengnum tillögum frá fjölskyldunefnd.

9. gr.
Forföll
Þjónustuþega ber að tilkynna forstöðumanni félagslegrar heimaþjónustu, starfsmanni Eirar, hjúkrunarheimilis ef hann forfallast og getur ekki tekið á móti starfsmanni.
III kafli
Málsmeðferð, málskotsréttur umsækjanda og gildistími reglna

10. gr.
Tímabil samþykktar
Fyrsta samþykkt skal að jafnaði vera til þriggja mánaða. Þá skal umsókn metin að nýju og framlengd, ef ástæða þykir til. Þegar ljóst er að aðstæður muni ekki breytast er heimilt að samþykkja aðstoð í sex til 12 mánuði í senn.

11. gr.
Rökstuðningur synjunar
Ef umsókn er synjað fær umsækjandi skriflegar upplýsingar þar sem forsendur synjunar eru rökstuddar. Samhliða því skal hann fá skriflegar upplýsingar um áfrýjunarrétt sinn.

12. gr.
Áfrýjunarákvæði
Umsækjandi um félagslega heimaþjónustu getur áfrýjað ákvörðun trúnaðarmálafundar fjölskyldusviðs til fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar og skal það gert skriflega innan fjögurra vikna. Ákvörðun fjölskyldunefndar má áfrýja til úrskurðarnefndar félagsþjónustu í félagsmálaráðuneytinu sbr. lög nr. 40/1991 gr. 64 og skal það gert innan fjögurra vikna frá því viðkomandi barst vitneskja um ákvörðun.

13. gr.
Gildistími
Reglur þessar eru settar samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og öðlast þegar gildi.


Lagt fyrir fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar 27. nóvember 2007
Samþykkt í bæjarstjórn Mosfellsbæjar 5. desember 2007