Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar er einnig barnaverndarnefnd fyrir Kjósarhrepp
Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar sér einnig um félagsþjónustu fyrir Kjósarhrepp
Samþykkt fyrir Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar.
1. gr.
Fjölskyldunefnd fer með félagsmál eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum og í samþykkt þessari.
2. gr.
Fjölskyldunefnd
er skipuð fimm fulltrúum og fimm til vara, kosnum af bæjarstjórn.
Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Kjörtímabil
hennar er það sama og bæjarstjórnar. Nefndin skal halda gerðabók og
skulu fundargerðir hennar sendar bæjarstjórn til staðfestingar.
Fulltrúar í fjölskyldunefnd skulu gæta þagmælsku um einkamálefni fólks
sem fjallað er um á fundum nefndarinnar. Fulltrúi skal víkja af fundi,
og kalla til varamann, tengist hann einstaklingum eða málum, sem
fjallað er um í nefndinni, þannig að spillt geti óhlutdrægni hans og
valdið tortryggni.
3. gr.
Hlutverk fjölskyldunefndar er:
-að gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í félagsmálum og hafa
eftirlit með að stefna bæjaryfirvalda á hverjum tíma sé haldin.
-að hafa eftirlit með stofnunum sem vinna að félagsmálum, og
fylgjast með að þær vinni að settum markmiðum, í samræmi við lög og
veiti góða þjónustu.
-að leggja mat á þá þjónustu sem veitt er á vegum sveitarfélagsins í
félagsmálum með tölulegum upplýsingum og könnunum á meðal bæjarbúa.
Einnig að fjalla um þær kvartanir sem berast vegna þjónustunnar.
-að hafa eftirlit með jafnréttismálum í stofnunum bæjarins, og
fylgjast með að þær fylgi stefnu bæjaryfirvalda í jafnréttismálum og
vinni samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
-að fylgjast með ástandi jafnréttismála í Mosfellsbæ og leggja mat á
stöðu þeirra í bæjarfélaginu með tölulegum upplýsingum og könnunum á
meðal bæjarbúa. Einnig að fjalla um þær kvartanir sem berast vegna
jafnréttismála.
-að fara yfir tillögur forstöðumanna að fjárhagsáætlun hvers árs
hvað varðar þá liði sem falla undir verksvið nefndarinnar og gæta þess
í ákvörðunum sínum að halda áætlanir þegar að framkvæmdum kemur.
-að vera bæjarstjórn að öðru leyti til ráðuneytis í félagsmálum.
4. gr.
Verkefni fjölskyldunefndar eru:
Málefni tengd félagslegri ráðgjöf skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Málefni tengd fjárhagsaðstoð skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Málefni aldraðra, þ.á.m. félagsleg heimaþjónusta, skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um málefni aldraðra.
Málefni barna og ungmenna skv. lögum um vernd barna og ungmenna. barnalögum, lögræðislögum og ættleiðingarlögum.
Málefni unglinga skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Málefni fatlaðra skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um málefni fatlaðra.
Húsnæðismál skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Þar á meðal
umsjón með leiguhúsnæði í eigu bæjarins og umsjón með greiðslu
húsaleigubóta. sbr.. lög um húsaleigubætur.
Málefni áfengissjúkra og vímuefnavarnir, sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga og áfengislög.
Málefni atvinnulausra, þ.á.m. málefni tengd atvinnuleysisskráningu
og vinnumiðlun, sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga og lög um
vinnumiðlun.
Málefni tengd félagslegri heimaþjónustu skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Málefni sem tengjast fjölskylduráðgjöf Mosfellsbæjar og Reykjavíkur.
Jafnréttismál eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000.
Að gera tillögur til bæjarstjórnar um sérstakar tímabúndnar aðgerðir
til að jafna stöðu kynjanna í Mosfellsbæ eftir því sem ástæða er til
hverju sinni.
Að taka við ábendingum vegna brota á jafnréttislögum.
Að vera tengiliður við ráðuneyti jafnréttismála og Jafnréttisráð.
Að vinna að öðrum þeim verkefnum sem bæjarstjórn felur nefndinni á hverjum tíma.
5. gr.
Forstöðumaður
fjölskyldusviðs situr fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt.
Hann er ráðgjafi nefndarinnar og sér um ritun fundargerða, nema nefndin
ákveði annað. Hann undirbýr fundi í samstarfi við formann og
framkvæmir ákvarðanir nefndarinnar eftir að bæjarstjórn hefur staðfest
þær,
Um starfsmannamál fer eftir starfsmannastefnu Mosfellsbæjar.
6. gr.
Séu
ákvæði í lögum eða samstarfssamningum um seturétt aðila utan
nefndarinnar, þegar um mál þeim tengd er fjallað, skal gæta þess að þau
ákvæði séu uppfyllt. Nefndin skal gæta ákvæða stjórnsýslulaga við
meðferð mála