Heimgreiðslur

Samþykkt á 503. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 17. desember 2008

Samþykkt vegna styrks til fjölskyldna ungra barna

Styrkurinn er greiddur frá 9 mánaða aldri barnanna þar til leikskólavist hefst.

 

1. gr.  Almennt

Mosfellsbær styrkir foreldra eða forráðamenn barna frá 9 mánaðar aldri þar til barnið hefur leikskólagöngu, þó ekki lengur en til 1. september árið sem barnið verður 2ja ára. Ekki er greitt fyrir sumarfrísmánuðinn sem er júlímánuður.

2. gr.  Fjárhæð styrks

Upphæðir niðurgreiðslan skv. samþykkt þessari skulu settar í sérstakri gjaldskrá og skulu greiddar mánaðarlega.  Í gjaldskrá skal einnig kveðið á um forgangsgjald.  Rétt á forgangsgjaldi eiga eftirfarandi:

Foreldrar eða forráðamenn barna í forgangshópi þ.e. börn einstæðra foreldra, börn þar sem báðir foreldrar stunda fullt nám, börn starfsfólks leikskóla Mosfellsbæjar og börn dagforeldra í Mosfellsbæ sem starfa allan daginn (8-9 tíma vistun).

Nám skal vera fullt nám og skal stundað á skyldunámsstigi, framhaldsskólastigi og / eða á því stigi sem telst lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.

3. gr.  Skilyrði styrkveitingar

Eftirfarandi skilyrði eru fyrir styrkveitingu:

   a)   Að barnið eigi lögheimili í Mosfellsbæ í byrjun greiðslumánaðar styrks.

   b)   Að sótt hafi verið um styrkinn á þar til gerðu eyðublaði í Þjónustuveri Mosfellsbæjar eða

         á heimasíðu bæjarins.

   c)   Fyrst er hægt að sækja um styrk í mánuðinum sem barnið verður 9 mánaða. Umsókn er

         ekki afturvirk og tekur gildi frá og með næsta mánuði eftir að gild umsókn hefur borist

 

4. gr.  Greiðsla styrks

   a)   Styrkur greiðist frá og með næsta mánuði eftir að fullgild umsókn hefur borist.

   b)   Styrkur greiðist á bankareikning þess foreldris/forráðamanns sem er með sömu

         kennitölu og skráð fjölskyldunúmer barns skv. þjóðskrá.

   c)   Það er markmið Mosfellsbæjar að greiða styrkinn eigi síðar en 10. dag mánaðar.

   d)   Breytist fjölskyldunúmer barns t.d. vegna skilnaðar eða sambúðar skal það tilkynnt

         Mosfellsbæ á þar til gerðu eyðublaði. Verði Mosfellsbær þess var að fjölskyldunúmer  

         barns hafi breyst skal Mosfellsbær stöðva greiðslur þar til ný umsókn berst frá

         foreldri/forráðamanni sbr. b lið. Mosfellsbær skal tilkynna báðum hlutaðeigandi aðilum

         frá stöðvun greiðslna.


   e)   Sé umsækjandi eða maki umsækjanda í vanskilum við Mosfellsbæ vegna

         leikskólagjalda eða reikninga tengdum grunnskólum skal styrkur ganga til greiðslu  

         þeirra. Með "maka" umsækjanda er átt við einstakling sem er með sama

         fjölskyldunúmer og sá þiggur styrkinn á greiðsludegi.

5. gr.  Ofgreiðsla styrks

Með umsókn sinni fellst umsækjandi á reglur þessar og að tilkynna Mosfellsbæ tafarlaust ef styrkur er ranglega greiddur til viðkomandi.

Sé um ofgreiðslu styrks að ræða má Mosfellsbær leiðrétta komandi styrkgreiðslur vegna barnsins og gildir þá einu hvort breytingar hafi orðið á fjölskyldunúmeri barnsins. Sé um að ræða ofgreiðslu styrks eftir að styrktímabili líkur skal Mosfellsbær senda umsækjanda reikning fyrir hinum ofgreidda styrk þar sem veittur er 11 daga frestur til endurgreiðslu. Vanskil skulu innheimt með sama hætti og með sömu viðurlögum og gilda um leikskólagjöld.