Nr. 146/1997
SAMÞYKKT
um kattahald í Mosfellsbæ.
1.gr.
Samþykkt þessi er gerð til að stuðla að
því að eigendur og umráðamenn katta fari vel með ketti og tryggi þeim
góða vist og sjái jafnframt til þess að þeir séu ekki á flækingi og af
þeim stafi ekki ónæði og óþrifnaður.
2.gr.
Ef köttur veldur nágrönnum eða öðrum
ónæði, óþrifum eða tjóni, þá ber eiganda eða forráðamanni að leita
leiða til að koma í veg fyrir slíkt. Kattaeigendur eru ábyrgir fyrir
því tjóni sem kettir þeirra sannanlega valda. Foreldrar eru ábyrgir
fyrir köttum ólögráða barna sinna.
3.gr.
Alla ketti skal merkja með ól um
hálsinn, eða á annan sambærilegan hátt, þar sem fram koma upplýsingar
um eiganda, heimilisfang og símanúmer.
4.gr.
Eigendum og forráðamönnum katta ber að
taka tillit til fuglalífs á varptíma, með því að hengja bjöllu á ketti
og takmarka útiveru katta.
5. gr.
Ketti skal ormahreinsa reglulega,
þ.e.a.s. einu sinni á ári eða oftar eftir þörfum. Eigendur katta skulu
halda til haga vottorðum um reglulega ormahreinsun katta. Hvatt er til
reglulegra bólusetninga katta gegn helstu smitsjúkdómum þeirra.
6. gr.
Ef köttur hverfur frá heimili sínu skal
eigandi eða umráðamaður gera ráðstafanir til að finna köttinn.
Heilbrigðisnefnd, heilbrigðisfulltrúi eða aðili sem hefur sérstakt
umboð þeirra getur handsamað ketti. Hafi kattarins ekki verið vitjað
innan einnar viku skal honum ráðstafað til nýs ábyrgs eiganda eða hann
aflífaður. Allur kostnaður greiðist af eiganda.
7. gr.
Bæjarstjórn skal gera ráðstafanir til
útrýmingar á villiköttum. Slíkar aðgerðir skulu auglýstar á áberandi
hátt með a.m.k. einnar viku fyrirvara.
8. gr.
Eigendur katta skulu sæta skriflegri
áminningu fyrir brot á samþykkt þessari. Bæjar-stjórn er heimilt að
banna eða takmarka rétt viðkomandi til að halda kött ef fyrir liggja
skriflegar áminningar um ónæði eða hættu sem kötturinn er sannanlega
valdur að.
9. gr.
Mosfellsbær annast eftirlit með
kattahaldi, samkvæmt samþykkt þessari, undir yfirstjórn
Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis. Leita má aðstoðar lögregluyfirvalda
ef þörf krefur.
10. gr.
Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn
Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum 26. júní 1996. staðfestist hér
með samkvæmt 18. gr. laga um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit nr.
81/1988 til þess að öðlast gildi við birtingu.