Reglur um frístundaávísun í Mosfellsbæ
Forráðamenn barna og unglinga
Mosfellsbær gefur forráðamönnum allra barna og unglinga á aldrinum 6-18 ára með lögheimili í Mosfellsbæ kost á frístundaávísun að upphæð 15.000,- kr sem hægt er að nota til að greiða fyrir hvers konar frístundastarf hjá viðurkenndum frístundafélögum eða frístundastofnunum. Framvísun frístundaávísunar fer fram á íbúagátt Mosfellsbæjar með rafrænum hætti.
Markmið þessarar niðurgreiðslu er að hvetja börn og unglinga til að finna sér frístund sem hentar hverjum og einum.
- Eingöngu er hægt að sækja um frístundaávísunina á íbúagátt Mosfellsbæjar.
- Ávísunin gildir í eitt ár í senn, frá 1. september til 31. ágúst ár hvert, fyrir þau börn sem verða 6 ára og 18 ára á árinu, það er að segja börn sem eru að hefja nám í fyrsta bekk grunnskóla til og með unglinga á öðru ári í framhaldsskóla. Sé barn orðið 18 ára sækir það sjálft um á íbúagáttinni
- Til að geta nýtt viðkomandi frístundaávísun þarf umsækjandi:
- að eigi lögheimili Mosfellsbæ
- að vera aldrinum 6 – 18 ára
- að stunda skipulagt starf/ nám/ þjálfun, hjá viðurkenndu frístundafélagi sem nær yfir eina önn eða að lágmarki 10 vikur
Frístundafélög
Skilyrði Mosfellsbæjar fyrir því að frístundafélög eða frístundastofnanir, hér eftir nefnt frístundafélag, geti verið skráð í íbúagátt Mosfellsbæjar og móttekið frístundaávísun og boðið fram frístundastarf fyrir þá sem framvísa til þeirra frístundaávísun, eru þessi:
- Starfssemin sé á forsendum uppeldislegra gilda og forvarna í víðum skilningi. Starfsemin fari fram undir leiðsögn hæfra starfsmanna og leiðbeinenda við aðstæður sem hæfa starfi með börnum og unglingum og að barnið þarf að stunda skipulagt starf/ nám/ þjálfun hjá félaginu, sem nær yfir eina önn eða að lágmarki 10 vikur.
- Frístundafélag fær uppgjör frá Mosfellsbæ fyrir 15. hvers mánaðar í samræmi við skráningar sem framkvæmdar eru af forráðamönnum barna í íbúagáttinni í næsta mánuði á undan. En með skráningunni í íbúagáttina eru frístundaávísanir framseldar af forráðamönnum til viðkomandi frístundafélags.
Forráðamenn barna og unglinga og frístundafélög
Samskiptareglur Mosfellsbæjar vegna frístundaávísana gilda um samaskipti beggja aðila gagnvart Mosfellsbæ.
Reglur þessar eru samþykktar á 141. fundi íþrótta- og tómstundanefnd