Rotþrær, notkun og hreinsun
Samþykkt
um notkun og hreinsun rotþróa í Mosfellshreppi
1. gr.
Sérhver húseign í Mosfellshreppi sem ekki
tengist frárennsliskerfi hreppsins skal vera tengd rotþró af
nægjanlegri stærð. Skal slík rotþró og staðsetning hennar skal vera
viðurkennd af heilbrigðisfulltrúa.
2. gr.
Árlega skal fara fram tæming og hreinsun allra rotþróa skv. nánari ákvæðum samþykktar þessarar.
3. gr.
Hreinsun skal unnin á vegum Mosfellshrepps
og skal heilbrigðisfulltrúi hafa eftirlit með framkvæmd hennar.
Heilbrigðisnefnd og heilbrigðisfulltrúi gera tillögur um verktilhögun
og annað er skiptir máli til að tryggja að góður árangur náist.
4. gr.
Fyrir hreinsun og tæmingu skal sérhver
húseigandi greiða gjald skv. sérstakri gjaldskrá sem
heilbrigðismálaráðherra staðfestir og skal gjald þetta innheimt með
fasteignagjöldum eins og önnur holræsagjöld til Mosfellshrepps. Skal
gjald þetta vera jafnt álögðu holræsagjaldi eins og það er á hverjum
tíma en þó skal heimilt að innheimta aukagjald af þeim húseignum, þar
sem um óeðlilega mikinn kostnað er að ræða við tæmingu og hreinsun þó
aldrei meira en nemur sannanlegum kostnaði við verkið.
5. gr.
Rotþrær við sumarbústaði skal hreinsa svo
oft sem þörf er á til að þær þjóni tilgangi sínum, og er eigendum
bústaða skylt að sjá um slíka hreinsun. Heilbrigðisfulltrúi getur
krafist hreinsunar ef þörf er á að hans mati á kostnað eiganda. Með
brot gegn samþykkt þessari, valdsvið, þvingunarúrræði, málsferð,
úrskurði og viðurlög fer skv. lögum nr. 50/1981, um hollustuhætti og
heilbrigðiseftirlit.
6. gr.
Ofangreind samþykkt hreppsnefndar
Mosfellshrepps staðfestist hér með skv. 22. gr. laga nr. 50/1981, um
hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit til þess að öðlast gildi þegar við
birtingu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
14. janúar 1983.
F. h. r.