Dagskrá samgönguviku 2011

Dagskrá evrópskrar samgönguviku - 16.-22. september 2011
Alternative mobility – Allskonar samgöngur fyrir alla

Föstudagur, 16. september kl. 9:00-16:00 – Iðnó
Málþing „Hjólum til framtíðar“
Málþing í Iðnó um vistvænar samgöngur í umsjón Landsamtaka hjólreiðamanna og Hjólafærni á Íslandi.
Virtir erlendir gestafyrirlesarar halda erindi ásamt fjölbreyttu úrvali íslenskra fyrirlesara.

9.00 Setning - Árni Davíðsson formaður Landssamtaka hjólreiðamanna

9.15 How to Start Cycle Friendly Cities

Troels Andersen, Fredericia Cykelby and Cycling embassy of Denmark.

10.00 Kaffihlé
10.20 Hagkvæmni hjólreiða. Samgönguáætlun og hjólreiðar.
Þorsteinn R. Hermannsson verkfræðingur, Mannvit

10.50 Bicycle traffic promotion not a matter of money. How we do it in Oldenburg

Kerstin Goroncy, bicycle and pedestrian officer at the city of Oldenburg in Germany

11.30 Hjólaborgin Reykjavík, stigin skref og næstu skref

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs Reykjavíkur

11.45 Breyttar ferðavenjur 2007-2009

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hreyfingar hjá Landlæknisembættinu

12.00 Hádegishlé 12.50 Velo-city ráðstefnurnar og Charter of Seville
Morten Lange stjórnarmaður í Landssamtökum hjólreiðamanna

13.05 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ávarpar ráðstefnuna

13.15 Bicycle Cultures Are Man-Made
Marc van Woudenberg, the Dutch Cycling Embassy and owner of Amsterdamize.com.

13.55 Áherslur í öryggismálum hjólandi umferðar
Sigurður Helgason sérfræðingur frá Umferðastofu og framkvæmdastjóri Umferðarráðs.

14.10 Hjólum og njótum, fræðum og lærum
Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni á Íslandi

14.30 Góður hjóladagur - Um afstæði veðurs
Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki.

14.50 Samantekt og pallborðsumræður.   
Í pallborði verða:  Ögmundur Jónasson Innanríkisráðherra, Marc Van Woudenberg, Sesselja Traustadóttir og Dagur B. Eggertsson

15.30 Bergþór Pálsson syngur íslensku hjólalögin

15.45 Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, lokar ráðstefnunni.

15.55 Ráðstefnulok

Kaffi, léttar veitingar og spjall eftir að ráðstefnu lýkur
Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs er Pawel Bartoszek
Nánari upplýsingar um málþingið má finna á http://www.lhm.is og á http://www.samgonguvika.is
 

Laugardagur, 17. september kl. 13:00-16:00 – Höfuðstöðvar Strætó bs. Hesthálsi
Strætódagurinn / Fjölskylduhátíð Strætó bs.

Strætó bs. heldur úti viðamikilli fjölskylduhátíð við höfuðstöðvar fyrirtæksins að Hesthálsi 14. 
Boðið uppá hoppukastala og leiktæki fyrir börnin, kynningu á starfseminni, söguhorn, ofl.
Nánari upplýsingar má finna á www.straeto.is

Sunnudagur, 18. september – Mosfellsbær
Fjölskyldur hvattar til að nýta sér fjölbreytt úrval hjólastíga í Mosfellsbæ til útivistar

Mánudagur, 19. september – Mosfellsbær
Korterskortið sett á forsíðu heimasíðu Mosfellsbæjar, til að hvetja fólk til að  ganga eða hjóla innanbæjar.  Kortið sýnir 1,6 km radíus út frá miðbæ Mosfellsbæjar, sem tekur einungis um 15 mínútur að ganga og 6 mínútur að hjóla.

Þriðjudagur,  20. september - Mosfellsbær
Nýleg hjóla- og göngustígakort Mosfellsbæjar sem sýna fjölbreytt úrval stíga í bænum og tengingu við stígakerfi annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sett á forsíðu heimasíðu Mosfellsbæjar og komið fyrir á áberandi stöðum í bænum, s.s. á bókasafni Mosfellsbæjar, íþróttamiðstöðvum við Varmá og Lágafell og víðar.

Miðvikudagur, 21. September
Fjölskyldur hvattar til að nýta sér fjölbreytt úrval hjólastíga í Mosfellsbæ til útivistar.

Fimmtudagur, 22. september - Mosfellsbær
Bíllausi Dagurinn

Starfsfólk skóla og leikskóla, ásamt foreldrum skólabarna, hvatt til að skilja bílinn eftir heima og nýta sér vistvænni samgöngumáta þegar þau koma með börn sín í skólann, sé þess kostur.