Leirvogstunga

Í Leirvogstungu rísa 400 sérbýlisíbúðir og landinu er leyft að njóta sín vel enda eru þar færri  

íbúðir á hvern hektara en almennt þekkist.

  

Leirvogstunga – sérbýli í sveit

   Þægindi þéttbýlisins og kyrrð og fegurð sveitarinnar sameinast í Leirvogstungu. Þetta glæsilega sérbýlishúsahverfi verður byggt 400 lágreistum einbýlis- rað- og keðjuhúsum. Alúð er lögð við að fella byggðina að landslaginu enda eru lífsgæði og nálægð við náttúru lykilorð við allt skipulag og framkvæmd.

   Leirvogstunga verður byggð upp í áföngum og er stefnt að því að uppbyggingin í heild taki fjögur ár.

   Fyrsti og annar áfangi eru þegar komnir í úthlutun og eru lóðir að seljast upp á þeim svæðum. Fyrsti áfangi er svæðin sem eru næst miðkjarna Mosfellsbæjar, svæði tvö og svæði fimm. Í þessum áfanga verða 15 einnar hæðar einbýlishús, 30 tveggja hæða einbýlishús, 33 íbúðir í tveggja hæða raðhúsum og 24 íbúðir í tveggja hæða keðjuhúsum.

   Í öðrum áfanga eru einbýlis- og raðhúsalóðir á svæði þrjú. Lóðirnar eru í hallandi landi sem liggur að sjó og bjóða því upp á mjög fallegt útsýni yfir Leirvoginn og til Reykjavíkur.

   Í hverfinu verður reistur nýstárlegur sambyggður grunn- og leikskóli vestur af aðkomunni frá Vesturlandsvegi. Bygging hans er í samræmi við áherslu Mosfellsbæjar á framsæknar hugmyndir í skólamálum og einstaklingsmiðað nám. Skólinn verður staðsettur í hjarta hverfisins þannig að stutt verður að fara fyrir börnin.

   Leirvogstungulandið hefur komið við sögu allt frá landnámi. Núverandi eigandi er af fimmta ættlið fjölskyldu sem hefur átt jörðina í meira en 100 ár.

   Mikið líf var á svæðinu á landnáms- og þjóðveldisöld. Land var numið í Leirvoginum í kringum 900 og verslun var þar ætíð mikil vegna þess að þarna var ein helsta höfn á suðvesturhorni frá landnámi og fram eftir miðöldum.

   Við Leirvogsá voru einnig haldnar hólmgöngur. Þá voru hestaöt við Hestaþingshól og skip lögðu að við Skiphól.

 

Deiliskipulagsuppdráttur

Skýringaruppdráttur

Lóðakort

Tunguvegur – tengibraut

Tunguvegur - aðal- og deiliskipulag ásamt tilheyrandi
umhverfisskýrslum

 

 

 

 

Íbúavefur – Á íbúavef Leirvogstungu geta íbúar og hönnuðir nálgast lóðablöð, mæliblöð og ýmis eyðublöð sem koma sér vel við uppbygginguna.

 

 

Lóðarblöð (AutoCad - 478kb)

 

Lóðarblöð (Pdf - 6.5MB)

 

Lóðarblað Vogatunga (pdf - 120kb)

 

Ósk um skil á lóðum - upplýsingar (.pdf - 12kb)