Umhverfisviðurkenningar - tilnefning

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga


Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2011.
Almenningur og fyrirtæki geta tilnefnt þau svæði eða aðila í Mosfellsbæ sem þeim finnst skara framúr í umhverfismálum.

Umhverfisviðurkenningar verða veittar í þremur flokkum sem hér segir:
a)    Garðar
b)    Íbúagötur
c)    Fyrirtæki
Veitt verður ein viðurkenning í hverjum flokki.

Tilnefningar eru sendar rafrænt með því að fylla út reitina hér að neðan eða á eyðublöðum sem fást í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 1. hæð.

Tilnefningum skal skilað  fyrir 1. ágúst 2011 og verða viðurkenningarnar veittar á bæjarhátíðinni Í túninu heima dagana 26.-28. ágúst nk.

Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar hefur til hliðsjónar við val á tilnefningum gátlista sem nálgast má hér.


Umhverfisviðurkenning Mosfellsbæjar - Tilnefning
   
Flokkur
   
   
Ástæður fyrir tilnefningu, hakið við eitt eða fleiri atriði