Fréttir

Sjá nýjustu fréttirnar frá mos.is hér fyrir neðan.  Eldri fréttir má sjá hér.


22.2.2012

Skemmtileg heimsókn á bæjarskrifstofuna í tilefni Öskudagsins

öskudagur 2012Starfsfólk bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar tók í dag á móti fjölmörgum glöðum krökkum sem sungu hástöfum fyrir starfsfólk, gesti og gangandi í tilefni Öskudagsins.  Lagavalið var fjölbreytilegt, frumsamin lög , þekkt lög, gömul og ný ma. hið nýkjörna eurovisionlag "Mundu eftir mér" eftir mosfellinginn Grétu Salóme Stefánsdóttur,  sem er framlag Íslands til Eurovision í Aserbaísjan 2012.

17.2.2012

Nemendur úr 9. og 10. bekk í Varmárskóla heimsóttu Riga í Lettlandi

Heimsókn Riga í LettlandiVikuna 11. – 16. febrúar voru 15 nemendur og þrír kennarar úr Varmárskóla,  í  Riga í Lettlandi að taka þátt í Nordplus junior verkefni.  Nemendurnir heimsóttu  jafnaldra sína í  Rīgas Zolitūdes Ģimnazija skólanum.

17.2.2012

Bergsteinn Björgúlfsson bæjarlistamaður í Hlégarði

baearlistamadurFimmtudaginn 23. febrúar verður dagskrá í Hlégarði um bæjarlistamann Mosfellsbæjar Bergsteinn Björgúlfsson kvikmyndatökustjóra og framleiðanda. Dagskráin hefst kl. 20.00 og stendur til kl. 21.30.
Notaleg stemning, kaffi og kókostoppar.

16.2.2012

Opnun seinni hluta sýningar HUXI! í Listasal Mosfellsbæjar

HUXI!

Föstudaginn 17.febrúar kl.16-18, verður opnaður síðari hluti sýningarinnar HUXI!.Nemendur úr 10. bekk Lágafells- og Varmárskóla hafa sett upp verk sem þeir hafa unnið undir áhrifum frá verkum Hugleiks og Arnars á sýningunni. Hvetjum alla að kíkja inn og sjá upprennandi listamenn sýna verk sín. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

15.2.2012

Opin vika í Listaskólanum

dagur tónlistarskólannaVikuna 13. - 17. febrúar er opin vika í Listaskólanum. Þá halda nemendur í mið- og framhaldsnámi tónleika og flytja fjölbreytta dagskrá í öllum grunnskólum bæjarins og auk þess eina tónleika í Bókasafni Mosfellsbæjar.

8.2.2012

Kærleiksvikan framundan 12.-19. febrúar

Kærleiksvika 2012Kærleiksvika verður nú haldin í þriðja sinn 12.-19. febrúar en eins og áður verður kærleikurinn ofar öllu hér í Mosfellsbæ. Markmið vikunnar er að hver einasti bæjarbúi finni fyrir kærleik í sinn garð og gefi af sér kærleik.  Þetta gæti falist í hrósi, faðmi, brosi, fallegum skilaboðum eða einhverju öðru uppbyggilegu og skemmtilegu. Skipulögð hefur verið fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna alla vikuna.

8.2.2012

Til hamingju

gretamynd2Það er óhætt að óska Mosfellingnum, Grétu Salóme Stefánsdóttur, innilega til hamingju því svo sannarlega kom hún, sá og sigraði í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins 2012 sem fram fór í Hörpu sl. laugardagskvöld.

6.2.2012

Dagur leikskólans er í dag

dagur leikskolansDagur leikskólans er í dag, 6. febrúar. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu

2.2.2012

Tilkynning til eigenda fasteigna í Mosfellsbæ um álagningu fasteignagjalda

álagningarseðlarÁlagningarseðlar fasteignagjalda eru birtir rafrænt á www.island.is og íbúagátt Mosfellsbæjar. Fasteignagjöld má greiða með greiðsluseðlum sem birtast í heimabanka, beingreiðslum, boðgreiðslum og í Þjónustuveri Mosfellsbæjar.Greiðsluseðlar eru ekki sendir nema þess hafi verið óskað sérstaklega á íbúagátt Mosfellsbæjar eða í Þjónustuveri.

1.2.2012

Lokað verður vegna vegaframkvæmda í Mosfellsbæ

Göngubrú_afstaða_minni

Unnið er við að fjarlægja undirslátt undan brúargólfi göngubrúar yfir Vesturlandsveg við Krikahverfi í Mosfellsbæ í dag og á morgun. Vegna þessa þarf að loka tímabundið fyrir umferð eftir Vesturlandsvegi undir brúna.
27.1.2012

Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um fjárframlög til lista- og menningarstarfsemi 2012

Merki MosfellsbæjarMenningarmálanefnd auglýsir eftir aðilum sem óska eftir fjárframlögum frá nefndinni  vegna listviðburða og menningarmála árið 2012.  Hér undir falla fjárframlög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum.

26.1.2012

Samstarf milli RannUng og sveitafélaga undirritaður.

Samningur við RannUng og sveitafélagaBæjarstjórar í sveitarfélugunum í Kraganum,  Mosfellsbæ,  Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi og Seltjarnarnesi ásamt forstöðumanni Rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna, RannUng, við Háskóla Íslands, undirrituðu í gær samstarfssamning um rannsóknarverkefni í leikskólum sveitarfélagana. Markmið samstarfsins er að auka þekkingu á leikskólastarfi í sveitarfélögunum og stuðla að auknum gæðum í leikskólastarfi. Um er að ræða samning til þriggja ára.

26.1.2012

Lífshlaupið á dagskrá

IMG_4826_MYNDHið árlega lýðheilsuátak „Lífshlaupið“  fer nú fram dagana 1.-21. febrúar. Um er að ræða fræðslu- og hvatningarverkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa og eru allir hvattir til að taka þátt.

23.1.2012

Vefur Mosfellsbæjar einn af 5 bestu vefjum íslenskra sveitarfélaga

UTSíðastliðinn miðvikudag, 18.janúar voru kynntar niðurstöður á úttekt á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga. Úttektin sem framkvæmd er af Deloitte fyrir Ský, skýrslutæknifélag Íslands, annað hvert ár er gerð með það að markmiði að meta gæði vefjanna, fá yfirlit yfir þjónustu sem er í boði og til þess að fylgjast með þróun og breytingum. Alls voru  267 vefir teknir til skoðunar og þar af voru 70 sveitarfélög sem tóku þátt í úttektinni.

20.1.2012

Asahláka – sandur í Þjónustustöð

AsahlákaSpáð er asahláku um helgina og þar sem mikill snjór og klaki er í bænum er hætta á vatnstjónum og hálkuslysum.
Hjá Þjónustumiðstöð ( áhaldahúsi ) bæjarins, Völuteig 15 geta íbúar fengið sand til að bera á plön og stéttar við heimahús. Aðgengi er opið að sandi við Þjónustumiðstöð og er bæjarbúum velkomið að taka sand sem til þarf.

20.1.2012

Úrslit um kjör íþróttamanns og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2011

Telma Rut Frímannsdóttir og Ingi Rúnar Gíslason þjálfari Kristjáns ÞórsKjör íþróttamanns og íþróttakonu Mosfellsbæjar fór fram í Íþróttamiðstöðinni að Varmá í gærkvöld. Ásamt því að heiðra íþróttakarl og íþróttakonu Mosfellsbæjar voru veittar viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla, bikarmeistara, landmótsmeistara og fyrir þátttöku í æfingum eða keppni með landsliði. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir efnilegasta dreng og stúlku yngri en 16 ára í hverri íþróttagrein.

18.1.2012

Kjör íþróttamanna Mosfellsbæjar 2011

Íþróttafólk 2010Fimmtudaginn 19. janúar nk. kl. 20 verður haldið hóf í Íþróttamiðstöðinni að Varmá þar sem lýst verður kjöri íþróttakarls- og konu Mosfellsbæjar árið 2011. Við sama tilefni er þeim einstaklingum sem hafa orðið Íslands

18.1.2012

Framkvæmdir við göngu- og hjólreiðastíg

Samgonguvika_2009 097Nú standa yfir framkvæmdir við göngu- og hjólreiðastíg meðfram Vesturlandsvegi.  Vinnuvélar eru nú að störfum á horni Vesturlandsvegar og Skarhólabrautar við Hlíðartúnshverfi þar sem unnið er að fyrsta hluta stígsins.
Um er að ræða samgöngustíg sem tengja mun núverandi stígakerfi í Mosfellsbæ við stígakerfi Reykjavíkur.

12.1.2012

Hanna Símonarsdóttir valin Mosfellingur ársins

mosfellingur ársins 2011Fótboltamamman og athafnakonan Hanna Símonardóttir hefur verið valin Mosfellingur ársins 2011 af bæjarblaðinu Mosfellingi. Hanna hefur um árabil verið ein aðal driffjöðurin í starfi Aftureldingar. Hún er ma. upphafsmaður risa þorrablóts Aftureldingar í þeirri mynd sem það er í dag auk þess sem hún á veg og vanda að knattspyrnuskóla Aftureldingar

11.1.2012

Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi 1. febrúar

Strætó lógóStjórn Strætó bs. ákvað á fundi sínum 16. desember síðastliðinn að hækka gjaldskrá sína. Þannig mun verð á tímabilskortum og  afsláttarfarmiðum hækka um 10% að jafnaði 1. febrúar næstkomandi. Stök fargjöld haldast hins vegar óbreytt, eða 350 krónur. Strætókort eru seld í  Þjónustuveri Mosfellsbæjar og Íþróttamiðstöð Varmá.