Lesa frétt

14.10.2009

Áfangaskýrsla 2: Stefna aðalskipulagsins

Í október 2008 var sendur út spurningalisti til helstu lykilstjórnenda Mosfellsbæjar til þess að fá fram upplýsingar um stöðu og árangur í þeim málaflokkun sem fjallað var um í stefnumörkun gildandi aðalskipulags. Í framhaldi af svörum þeirra settu skipulagsráðgjafar fram tillögur að endurskoðaðri stefnumörkun, sem síðan hafa mótast frekar í umfjöllun skipulags- og byggingarnefndar. Áfangaskýrsla 1 (drög), sem hér liggur frammi, hefur að geyma drög að endurskoðuðum leiðarljósum, megin- og undirmarkmiðum fyrir þá málaflokka, sem aðalskipulagið fjallar um. Íbúar eru hvattir til að kynna sér þessi drög og koma á framfæri athugasemdum sínum og ábendingum á netfangið adalskipulag[hja]mos.is

Áfangaskýrsla 2: Stefna aðalskipulagsins.