Lesa frétt

14.10.2009

Áfangaskýrsla 1: Forsendur og stefna aðalskipulagsins

Í upphafi vinnu að endurskoðun aðalskipulagsins var lögð fram greinargerð um forsendur endurskoðunarinnar, Áfangaskýrsla 1. Þar er fjallað um ýmsar tölulegar forsendur og hvernig þær hafa þróast frá samþykkt aðalskipulagsins 2003. Fjallað er um tengsl aðalskipulags Mosfellsbæjar við aðrar áætlanir, s.s. svæðisskipulag og skipulag nágrannasveitarfélaga, en einnig við áætlanir á landsvísu og löggjöf. Farið er yfir hina ýmsu landnotkunarflokka og aðra þætti, sem skipulagið fjallar um, og dregið fram hvar ástæða sé til breytinga og endurskoðunar. Loks eru tíunduð leiðarljós, megin- og undirmarkmið gildandi aðalskipulags, en viðfangsefni endurskoðunarinnar er m.a. að yfirfara þá stefnumörkun með það fyrir augum að snerpa á markmiðum sem skipta máli, og fella hugsanlega niður önnur, sem ekki varða beinlínis aðalskipulagsmál.

Áfangaskýrsla 1, forsendur endurskoðunar.