Lesa frétt

8.2.2012

Til hamingju

Eurovisionstjörnunni okkar fagnað daginn eftir glæislegan sigur í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Greta Salóme, Vigdís frá kærleiksnefndinni og Haraldur bæjarstjóri.Það er óhætt að óska Mosfellingnum, Grétu Salóme Stefánsdóttur, innilega til hamingju því svo sannarlega kom hún, sá og sigraði í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins 2012 sem fram fór í Hörpu sl. laugardagskvöld. Lag hennar  “Mundu eftir mér„ varð hlutskarpast eftir harða úrslitakeppni og verður því framlag Íslands í Eurovision sem fram ber í Baku í Azerbaijan 22. – 26. maí nk.

Í nýjasta tölublaði Mosfellings voru Mosfellingar hvattir til að muna eftir Grétu og nú er ljóst að þeir hafa tekið áskoruninni.
Á bls. 4 í blaðinu  má sjá viðtalið við hana sem tekið var fyrir úrslitakeppnina.   http://mosfellingur.is/.


 gretamynd2