Lesa frétt

17.10.2009

Skipulagsþing 17. okt. 2009

Mynd frá skipulagsþingiSkipulagsþingið var haldið samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingarnefndar laugardaginn 17. október í samkomusal Lágafellsskóla, og var boðað til þess með dreifimiða, sem borinn var í öll hús í bænum.

Starfsmenn Umhverfissviðs unnu að framkvæmd þingsins en nutu ráðgjafar Sævars Kristinssonar viðskiptafræðings og rekstrarráðgjafa hjá ráðgjafarfyrirtækinu Netspor um fyrirkomulag og framkvæmd, og var hann í hlutverki fundarstjóra á þinginu.

Þingið stóð frá kl. 9:30 til kl. 14:00 með einu kaffihléi og voru þátttakendur rúmlega 40.  Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri hafði milligöngu um að útvega starfsfólk til að annast barnagæslu og sjá um veitingar á þinginu og húsvörður skólans aðstoðaði við að gera húsnæðið klárt til þinghalds.

Á meðan þingið stóð voru til sýnis á gangi skólans tillögur að deiliskipulagi miðbæjarins og 1. verðlaunatillaga úr samkeppni um kirkju og menningarhús.

Lesa skýrslu um skipulagsþingið.