Lesa frétt

2.2.2012

Tilkynning til eigenda fasteigna í Mosfellsbæ um álagningu fasteignagjalda

álagningarseðlarÁlagning fasteignagjalda 2012

Tilkynning til eigenda fasteigna í Mosfellsbæ.

Tilkynning um rafræna birtingu álagningarseðla hefur verið birt á mos.is og í bæjarblöðum.


Álagningarseðlar fasteignagjalda eru birtir rafrænt á upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is og íbúagátt Mosfellsbæjar ibuagatt.mosfellsbaer.is

Gjalddagar fasteignagjalda skiptast á níu gjalddaga frá 15. janúar til 15. september. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 20.000 er gjalddagi þeirra 15. janúar.

Fasteignagjöld má greiða með greiðsluseðlum sem jafnframt birtast meðal ógreiddra reikninga í heimabanka, með beingreiðslum, með boðgreiðslum og í Þjónustuveri Mosfellsbæjar. Greiðsluseðlar eru almennt ekki sendir nema þess hafi verið óskað sérstaklega á íbúagátt Mosfellsbæjar ibuagatt.mosfellsbaer.is eða í Þjónustuveri Mosfellsbæjar.

Sjá nánar um álagningu fasteignagjalda hér..

Þjónustuver Mosfellsbæjar veitir nánari upplýsingar og sendir þeim sem þess óska útprentaða álagningarseðla og greiðsluseðla.

Nánari upplýsingar og aðstoð fæst í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, sími 525-6700 eða á netfanginu mos@mos.is

Sjá nánar hér