Fréttir

Sjá nýjustu fréttirnar frá mos.is hér fyrir neðan.  Eldri fréttir má sjá hér.


16.5.2012

Þrif á götum og gangstéttum

GötuhreinsunNú stendur til að þvo og sópa gangstéttar og götur bæjarins. Til að það verði sem best gert þurfum við á ykkar aðstoð að halda. Bæjarbúar eru vinsamlegast beðnir að leggja ekki ökutækjum eða öðrum farartækjum á götunum eða gangstéttum meðan á hreinsun stendur. Ennfremur eru bæjarbúar hvattir til að hreinsa í kringum híbýli sín..

15.5.2012

Laust er til umsóknar starf forstöðumanns þjónustu- og upplýsingamála hjá Mosfellsbæ

afmælislogoForstöðumaður þjónustu- og upplýsingamála hefur yfirumsjón með starfsemi þjónustuvers, og annast upplýsingamiðlun og samskipti við fjölmiðla. Hann er ritstjóri á vef bæjarins og hefur með höndum gerð og útgáfu kynningarefnis ásamt því að taka þátt í stefnumótunarvinnu.

15.5.2012

2. Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Mosfellsbæ

Landsmót UMFI 50+ mini hvitur2. Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið dagana 8.-10. júní í sumar en 29.mars var opnað  fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50 + sem  haldið verður í Mosfellsbæ. Það er um að gera fyrir alla að skrá sig sem fyrst þar sem fjöldi keppenda verður takmarkaður í ákveðnum greinum.

15.5.2012

Matjurtagarðar í Mosfellsbæ

Matjurtagarðar 004l

Búið er að opna fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ.  Matjurtagarðar bæjarins verða sem fyrr staðsettir í Skarhólamýri, á sama stað og garðar hafa verið til útleigu undanfarin ár. Aðgengi að vatni verður við garðana.Leiguverð fyrir matjurtagarða er 5.000 kr. fyrir 100 fm garð og 2.500 kr. fyrir 50 fm garð.

14.5.2012

Kveðjuhóf fyrir Eurovisonfara í Mosfellsbæ

IMG_7504Eurovision farar Íslands í ár, Gréta Salóme og Jónsi, kveðja nú klakann og halda til Azerbaijan. Á föstudaginn var haldið kveðjuhóf í Mosfellsbæ sem er heimabær Grétu Salóme.  Viðburðurinn fór fram á Miðbæjartorginu í að viðstöddum mörgum bæjarbúum. 

9.5.2012

Vorhreinsun í algleymingi

Álafoss

Dagana 20. apríl – 13. maí er hreinsunarátak í Mosfellsbæ. Vorhreinsun lóða stendur yfir þessa viku eins og glöggt má sjá þegar farið er um bæinn þessa daga en sjá má glaðbeitt fólk víðsvegar með svarta ruslapoka í hönd að fegra bæinn sinn. Á þessu tímabili eru íbúar Mosfellsbæjar hvattir til að hreinsa í kringum hús sín og næsta umhverfi.

9.5.2012

Mosfellsbær tekur þátt í hjólað í vinnuna 2012.

hjólað í vinnuMosfellsbær hvetur alla Mosfellinga til að taka virkan þátt í heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir nú í tíunda sinn dagana 9. - 29. maí 2012. Í Mosfellsbæ er að finna marga skemmtilega hjólastíga og á vef bæjarins má finna hjólreiðakort af hjólaleiðum ásamt korterskorti

8.5.2012

Fulltrúar ríkis og SSH semja um 10 ára tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna

Stræto undirritunFulltrúar Vegagerðarinnar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skrifuðu í dag undir samkomulag um 10 ára tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangur verkefnisins er að tvöfalda hlutdeild almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu

8.5.2012

Göngudagur fjölskyldunnar á laugardaginn

Skátar göngudagurSkátafélagið Mosverjar halda göngudag fjölskyldunnar laugardaginn 12. maí þar sem allir eru velkomnir. Lagt verður að stað frá bílastæðum við Reyki kl. 11:00 en boðið er upp á tvær leiðir. Önnur upp á Reykjaborg og niður að Hafravatni en hin meðfram Hafrafelli og Hafravatni.

8.5.2012

Ályktun íbúafundar í Mosfellsbæ 3. maí

ibuafundur1Íbúafundur sem haldinn var í Listasal Mosfellsbæjar 3. maí sl. um starfsemi SORPU bs í Álfsnesi, leggst gegn því að SORPA fái áframhaldandi starfsleyfi í Álfsnesi. Íbúafundurinn telur starfsemina ekki  eiga  heima nálægt byggð meðal annars vegna lyktarmengunar.

6.5.2012

Kynningarfundur um aðalskipulag í Hlégarði.

opið hús SkipulagsfulltrúiBæjarbúar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn, sem er liður í forkynningu á tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi. Framsöguerindi flytja Bryndís Haraldsdóttir formaður skipulagsnefndar og Gylfi Guðjónsson skipulagsráðgjafi, en síðan verða fyrirspurnir og almennar umræður.

4.5.2012

ÚTBOÐ - HJÚKRUNARHEIMILI MOSFELLSBÆ

Eir ÚtboðMosfellsbær, óskar eftir tilboðum í innanhússfrágang vegna byggingar á nýju hjúkrunarheimili að Hlaðhömrum í Mosfellsbæ. Verkið nær til að gera húsið fullfrágengið að innan. Stærð hússins þegar það er fullbyggt er 2.268 m².

3.5.2012

Endurskoðun aðalskipulags: Kynningarfundur í Hlégarði 8. maí

opið hús Í fyrstu og annarri viku maí gengst Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar fyrir kynningu á tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi bæjarins. Vinna við endurskoðunina hófst á síðasta kjörtímabili og er stefnt að því að henni ljúki með endanlegri samþykkt skipulagsins síðar á þessu ári.

2.5.2012

Skólagarðar 2012

grænmetiSkólagarðarnir verða ekki strafræktir þetta árið. Sumarið 2011 var þeim breytt í fjölskyldugarða til að fá betri nýtingu á görðunum, þrátt fyrir það voru þeir mjög illa nýttir og var því tekin ákvörðun að bjóða ekki upp á skólagarða þetta árið en þess í stað verður hægt  að  leigja  garð á sama stað á bakvið Varmárskóla. 

26.4.2012

Útboð - jarðvinna

VarmáMosfellsbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna byggingu fimleikahúss við Íþróttamiðstöðina Varmá. Verkið felur í sér jarðvinnu og fyllingu á svæðinu. Grunnflötur hússins er 1218 m2
Verkinu skal vera að fullu lokið 12. júní 2012.

25.4.2012

VORIÐ ER KOMIÐ - HREINSUNARÁTAK Í MOSFELLSBÆ

SJO 2007-07-18 114338Dagana 20. apríl – 13. maí verður hreinsunarátak í Mosfellsbæ. Á því tímabili eru íbúar Mosfellsbæjar hvattir til að hreinsa í kringum hús sín og næsta umhverfi. Nú hillir í  vorið og því tímabært að fjarlægja rusl eftir veturinn.

25.4.2012

Mosfellsbær býður í bíó

Pardisarh 3Nú stendur yfir kvikmyndahátíð í Bíó Paradís sem ber yfirskriftina Laxness í lifandi myndum. Hátíðin er haldin í tilefni þess að liðin eru 110 ár frá fæðingu Nóbelsskáldsins. Mosfellsbær á líka afmæli í ár og að því tilefni hefur bærinn í samvinnu við Gljúfrastein ákveðið að bjóða Mosfellingum og öðrum sem þess óska frítt í bíó á eina sýningu á þessari kvikmyndahátíð.

24.4.2012

Raddir ungmenna - Opið hús hjá skólaskrifstofu

Opið hús - Raddir ungmennaSíðasta opna hús Skólaskrifstofu á þessari önn verður næstkomandi miðvikudag 25. apríl í Listasal Mosfellsbæjar og að þessu sinni eru það ungmennin okkar (krakkar á aldrinum ca. 18-25) sem koma og segja okkur frá sinni sýn á bæjarfélagið

23.4.2012

LOKASÝNING – TILBOÐ

Andlát við jarðaförMiðvikudaginn 25. apríl er lokasýning á hinu bráðskemmtilega leikriti Andlát við jarðarför hjá Leikfélagi Mosfellssveitar en það hefur verið fullt hús hjá leikfélaginu á nær allar sýningar. Í tilefni þess býður leikfélag Mosfellssveitar frábært tilboðsverð á þessa lokasýningu..

23.4.2012

Átak í söfnun skjala og minja um íþróttastarf um land allt

Félag Héraðsskjalavarða á ÍslandiÍ tilefni af 100 ára afmæli Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur sambandið og Félag Héraðsskjalavarða hafið samstarf um skráningu og söfnun á íþróttatengdum skjölum og  minni hlutum. Það sem um ræðir er m.a. ljósmyndir, myndbönd, fundargerðir, bréf, mótaskrár, félagaskrár, bókhald, merki og annað áhugavert sem kemur í ljós.