Metnaðarfyllsta bæjarhátíðin til þessa
-Hátíðarstemmning í Mosfellsbæ og mikill spenningur fyrir helgina -
Bæjarhátíð Mosfellsbæjar verður haldin nú um helgina og er dagskráin að vanda fjölbreytt, metnaðarfull og skemmtileg. Bæjarbúar hafa skreytt bæinn sinn í hverfislitunum fjórum og hefur sköpunargleðin og ímyndunaraflið greinilega fengið útrás á mörgum bæjum þetta árið.
Daði Þór Einarsson, skipuleggjandi hátíðarinnar, segir að hátíðin verði sú metnaðarfyllsta til þessa. "Mosfellingar nær og fjær hafa lagt sig fram við að gera hátíðina sem best úr garði að þessu sinni og vil ég fullyrða að sjaldan hefur tekist jafn vel upp með dagskráratriði og nú," segir Daði.
Hann bendir á að bæði laugardag og sunnudag verði fjöldi stórra og smærri atriða, jafnt fyrir börn sem fullorðna. "Fjöldi frægra skemmtikrafta og listamanna tekur þátt í ár. Má þar nefna hinar sívinsælu Skoppu og Skrítlu sem verða að Varmá á laugardag kl. 13 og Örn Árnason verður með barnadagskrá fyrsta hálftímann á útitónleikunum þá um kvöldið en á þeim spila hvorki meiri né minni menn en Bubbi og Egó og Paparnir sem halda síðan fjörinu áfram á balli í Íþróttahúsinu að Varmá. Svo slúttum við hátíðinni með glæsibrag í Íþróttamiðstöðinni á sunnudaginn með Stórsveit Reykjavíkur og snillingunum Ragga Bjarna og Kristjönu Stefáns," segir Daði.
Hátíðin verður sett á Miðbæjartorgi á föstudag kl. 20 og verður gengið í karnivalskrúðgöngu að lokinni setningarathöfn yfir í Ullarnesbrekkur þar sem varðeldur verður tendraður og brekkusöngur sunginn.
Fjöldi viðburða verður alla helgina, víðs vegar um bæinn. Á laugardag og sunnudag verður dagskrá í Íþróttamiðstöðinni að Varmá milli klukkan 13 og 17. Þar verða kynningarbásar frá hinum ýmsu fyrirtækjum og stofnunum í Mosfellsbæ og jafnframt fjöldi skemmtiatriða sem miðast við yngstu kynslóðina. Til að mynda munu hinar sívinsælu Skoppa og Skrítla mæta á svæðið á laugardag.
Á sama tíma verður fjölbreytt dagskrá á Varmárvelli, t.a.m. verður hópflug og karamellukast á vegum Flugklúbbs Mosfellsbæjar á laugardag. Á laugardeginum verður jafnframt tónlistardagskrá í Hlégarði frá klukkan 14.
Hápunktur bæjarhátíðarinnar verður á laugardagskvöld. Haldin verða götugrill víðs vegar í hverfum bæjarins og að þeim loknum verða útitónleikar fyrir alla fjölskylduna á Miðbæjartorgi. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 með því að Örn Árnason skemmtir börnunum. Þá tekur við hinn hæfileikaríki Mosfellingur, Hreindís Ylfa og því næst Alan Jones, sem sló í gegn í X-Factor. Loks taka við ekki minni númer en Paparnir, Bubbi og Egó sem halda uppi stemmningu til kl. 22.30
Að tónleikum loknum verður flugeldasýning og við tekur stórdansleikur í Íþróttamiðstöðinni Varmá í umsjón Knattspyrnudeildar Aftureldingar. Dúettinn Hljómur, Bubbi og Egó og Paparnir leika fyrir dansi.
Útimarkaðir verða á tveimur stöðum á laugardaginn klukkan 12 til 16. Annars vegar í Mosskógum í Mosfellsdal og hins vegar Álafosskvos.
Lokaatriði bæjarhátíðinnar verður í Íþróttamiðstöðinni að Varmá á sunnudag kl. 15. Þá mun Stórsveit Reykjavíkur ásamt Ragga Bjarna og Kristjönu Stefánsdóttir skemmta. Formlegri dagskrá lýkur kl. 17.
Af tilefni hátíðarinnar verður frítt í leið 15 á laugardaginn.
-ENDIR-
Tækifæri til myndatöku:
- Karnivalskrúðganga föstudagskvöld kl. 20.00 á Miðbæjartorgi við Þverholt
- Varðeldur við Varmá föstudagskvöld kl. 21.00
- Skoppa og Skrítla og fleiri skemmtiatriði í Íþróttahúsinu Varmá kl. 13-17 laugardag
- Stórtónleikar á Miðbæjartorgi laugardag kl. 20.30-22.30, flugeldasýning
Litríkar, hugmyndaríkar skreytingar um allan bæinn.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, forstöðumaður kynningarmála hjá Mosfellsbæ, s. 894 9050/525 6708 sigridurdogg@mos.is