Fréttatilkynningar - lesa meira

16.8.2011

TIL ÍBÚA Í ÁSA- OG HELGAFELLSHVERFI

vesturlandsvegurFramkvæmdir við tvöföldun Vesturlandsvegar frá Álafosstorgi að Þingvallatorgi er nú langt á veg komnar. Um leið og vegurinn verður orðinn tvöfaldur er aðkoma um Ásland í núverandi mynd ekki möguleg.

Stefnt er að lokun Áslands eigi síðar en 15. ágúst 2011. 

Íbúum í hverfinu er bent á að nýta sér aðkomuleið frá Álafosshringtorgi um Helgafellsveg og inn Ásland.

Með þessari breytingu á akstur að og frá hverfinu til framtíðar að verði bæði betri og öruggari.

UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR