Bæjarstjóri

Haraldur SverrissonBæjarstjóri Mosfellsbæjar kjörtímabilið 2008-2012 er Haraldur Sverrisson, oddviti Sjálfstæðismanna.

Haraldur Sverrisson er fæddur 1961.  Hann er sonur Sverris Haraldssonar listmálara og Steinunnar Marteinsdóttur leirlistamanns.  Hann fluttist að Hulduhólum í Mosfellsbæ 1969, 7 ára að aldri og hefur búið þar síðan. Hann er stúdent frá Menntaskólanum við Sund og lauk Cand Ocon prófi í viðskiptafræðum frá Háskóla Íslands árið 1987.  Hann stundaði framhaldsnám í fjármálum og stjórnun við University of Arisona árið 2001.  Maki Haraldar er Ragnheiður Gunnarsdóttir, viðskiptafræðingur og forstöðumaður hjá Fjársýslu ríkisins.  Börn eru Steinunn Anna 28 ára, Valgerður Rún 18 ára og Sverrir 9 ára. Barnabörn eru tvö þau Áróra og Árni Hrafn.

Eftir að Haraldur lauk viðskiptafræðiprófi starfaði hann sem framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Vals 1986 til 1988 þar til hann var ráðinn deildarstjóri á kjarasamningasviði Launaskrifstofu ríkisins.  Árið 1991 tók Haraldur við starfi rekstrarstjóra fjármálaráðuneytisins og síðar stöðu skrifstofustjóra rekstrar- og upplýsingaskrifstofu ráðuneytisins.  Frá september árið 2007 hefur Haraldur gegnt starfi bæjarstjóra Mosfellsbæjar

Haraldur var varabæjarfulltrúi árin 1998-2002 og á því kjörtímabili var hann nefndarmaður í skipulags- og byggingarnefnd sem og menningarmálanefnd.  Hann var í 2. sæti á framboðslista sjálfstæðismanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar vorið 2002 og sat því í bæjarstjórn það kjörtímabil.  Jafnframt var hann formaður bæjarráðs og skipulags- og byggingarnefndar.  Þeim embættum sinnti Haraldur einnig á þessu kjörtímabili þar til hann var ráðinn bæjarstjóri haustið 2007. 

Hægt er að bóka viðtal við bæjarstjóra hjá Þjónustuveri í síma 525 6700 eða með því að senda tölvupóst á mos[hja]mos.is.

Netfang bæjarstjóra er haraldur[hja]mos.is

Bæjarstjóri býður jafnframt upp á vefspjall á þriðjudögum kl. 11-12.