Lesa fundargerð

3.2.2012

Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1061 - 02.02. 2012

1061. fundur
Bæjarráðs Mosfellsbæjar
haldinn að Þverholti 2, 2. hæð Helgafell, 
fimmtudaginn 2. febrúar 2012 og hófst hann kl. 07:30


Fundinn sátu:
Herdís Sigurjónsdóttir (HS), Bryndís Haraldsdóttir (BH), Jón Jósef Bjarnason (JJB), Hanna Bjartmars Arnardóttir (HBA), Haraldur Sverrisson (HSv), Stefán Ómar Jónsson (SÓJ), Jóhanna Björg Hansen.

Fundargerð ritaði:  Stefán Ómar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá:

1.  2010081418 - Framhaldsskóli - nýbygging
 Til máls tóku: HS, HSv, BH og JJB.
Samþykkt með þremur atkvæðum að heimila umhverfissviði að staðfesta þátttöku Mosfellsbæjar í útboði vegna byggingar framhaldsskóla í Mosfellsbæ.
   
2.  201201381 - Úttekt á ástandi eldri hverfa
 Til máls tóku: HS, JBH, JJB, HSv, BH og HAB.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til frekari vinnslu á umhverfissviði í samræmi við umræður og ábendingar sem fram komu á fundinum. Jafnframt verði erindið sent umhverfisnefnd til kynningar.
   
3.  201201459 - Snjómokstur 2011
 Til máls tóku: HS, JBH, HSv, BH, JJB og HBA.
Erindið lagt fram.
   
4.  201201571 - Erindi Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis varðandi breytingu á gjaldskrá
 Samþykkt með þremur atkvæðum framlögð breyting á gildandi gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Kjósarsýslu í samræmi við fyrirliggjandi tillögu þar um frá eftirlitinu.
   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:25