Lesa fundargerð

2.2.2012

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar - 573 - 01.02.2012

573. fundur
Bæjarstjórnar Mosfellsbæjar
haldinn að Þverholti 2, 2. hæð Helgafell, 
miðvikudaginn 1. febrúar 2012 og hófst hann kl. 16:30

 

Hljóðskrá frá fundinum

 

Fundinn sátu:
Hafsteinn Pálsson (HP), Karl Tómasson (KT), Herdís Sigurjónsdóttir (HS), Haraldur Sverrisson (HSv), Bryndís Haraldsdóttir (BH), Jón Jósef Bjarnason (JJB), Hanna Bjartmars Arnardóttir (HBA), Stefán Ómar Jónsson (SÓJ).

Fundargerð ritaði:  Stefán Ómar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá:

1.     201201011F - Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1059
    Fundargerð 1059. fundar bæjarráðs lögð fram til afgreiðslu á 573. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
       
    1.1.    201002199 - Erindi Vegagerðarinnar varðandi héraðsvegi í Mosfellsbæ
        Erindið var langt fram á 1059. fundi bæjarráðs. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    1.2.    201109369 - Beiðni um skil á lóðinni Litlikriki 37
        Afgreiðsla 1059. fundar bæjarráðs, að heimila stjórnsýslusviði að semja um að taka lóðina til baka, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    1.3.    201102225 - Erindi íbúa í Aðaltúni 6 og 8 varðandi breytingu á lóðamörkum
        Afgreiðsla 1059. fundar bæjarráðs, að fela framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs að ganga frá samkomulagi um stækkun lóðanna, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    1.4.    201111068 - Umsagnarbeiðni um drög að skipulagsreglugerð
        Afgreiðsla 1059. fundar bæjarráðs, að senda umhverfisráðuneytinu umsögn Mosfellsbæjar, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    1.5.    201112003 - Samstarfssamningur sveitarfélaga við RannUng um rannsóknarverkefni í leikskólum
        Afgreiðsla 1059. fundar bæjarráðs, að heimila fræðslusviði að ganga frá samstarfssamningnum af hálfu Mosfellsbæjar, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    1.6.    201201244 - Samþykkt 47. sambandsþings UMFÍ
        Erindið var langt fram á 1059. fundi bæjarráðs. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    1.7.    201201246 - Erindi Umferðarstofu varðandi hálkuvarnir og snjóhreinsun
        Afgreiðsla 1059. fundar bæjarráðs, að vísa erindinu til umsagnar umhverfissviðs, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    1.8.    201201249 - Verkferill vegna deiliskipulagsgerðar
        Afgreiðsla 1059. fundar bæjarráðs, að taka upp verkferli vegna deiliskipulagsgerðar o.fl., samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    1.9.    201201367 - Erindi Bandalags íslenskra skáta varðandi styrk
        Afgreiðsla 1059. fundar bæjarráðs, að vísa erindinu til bæjarstjóra til umsagnar og afgreiðslu, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    1.10.    201201368 - Erindi lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins varðandi umsögn um tímabundið áfengisveitingaleyfi UMFA
        Afgreiðsla 1059. fundar bæjarráðs, að gera ekki athugasemd við tímabundið áfengisveitingaleyfi, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    1.11.    201201386 - Fimm ára rekstaráætlun Sorpu bs. 2013-2017
        Erindið var langt fram á 1059. fundi bæjarráðs. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    1.12.    201111242 - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2011
        Afgreiðsla 1059. fundar bæjarráðs, að veita peningaverðlaun samhliða titlinum, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    1.13.    201108052 - Erindi UMFA varðandi aðstöðumál Aftureldingar
        Til máls tóku: JJB, HSv, HS, BH, HP, KT og HBA.
 
Íbúahreyfingin ítrekar ámælisverð og ólýðræðisleg vinnubrögð bæjarstjóra og formanns bæjarráðs í þessu máli.
Skýrsla sem bæjarstjóri pantaði hjá Capacent og kostaði hálfa milljón króna var með öllu ónauðsynleg og það hefði komið strax fram ef málið hefði verið borið undir bæjarráð. Það er mat Íbúahreyfingarinnar að skýrslan hafi verið pöntuð í pólitískum tilgangi, enda hefur hún engin áhrif á ákvörðun í málinu.
Íbúahreyfingin krefst þess að farið sé eftir lýðræðislegum leikreglum. Íbúahreyfingin krefst þess að fá að kynna sér efni bæjarráðsfunda fyrir bæjarráðsfundi líkt og kverðið er á um í samþykktum Mosfellsbæjar.
Jón Jósef Bjarnason bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar.
 
 
Bókun bæjarfulltrúa D- og V lista.
Líkt og bæjarráðsfulltrúi Íbúahreyfingarinnar hefur verið upplýstur um komu fram hugmyndir um byggingu nýs húss við Varmá í lok árs 2011. Strax var hafist handa við að skoða þennan nýja kost og bera saman við þann sem hafði verið til skoðunar. Um er að ræða fjárfestingu upp á annað hundrað milljónir króna og því nauðsynlegt að gera fjárhagslega greiningu á þessum valkostum. Að gera það ekki hefði verið óábyrg meðferð almannafjár.
Eðlileg vinnubrögð embættismanna hafa verið viðhöfð í málinu og fyrir vikið liggja fyrir ítarleg og góð gögn fyrir lýðræðislega kjörna fulltrúa til að taka afstöðu í málinu, sem er enn í vinnslu.
 
Afgreiðsla 1059. fundar bæjarráðs, að vísa erindinu til íþrótta- og tómstundanefndar til umsagnar, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
        
2.     201201018F - Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1060
    Fundargerð 1060. fundar bæjarráðs lögð fram til afgreiðslu á 573. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
       
    2.1.    201108052 - Erindi UMFA varðandi aðstöðumál Aftureldingar
        Til máls tóku: JJB og HS.
Afgreiðsla 1060. fundar bæjarráðs, að vísa erindinu til skipulagsnefndar til umsagnar svo og að óska eftir afstöðu UMFA til fyrirliggjandi valkosta, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    2.2.    201110300 - Reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með einhverskonar fötlun
        Afgreiðsla 1060. fundar bæjarráðs, að fela framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs að svara bréfritara í samræmi við fyrirliggjandi umsögn, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    2.3.    201111200 - Erindi Alþingis, umsagnarbeiðni um tillögu til þingsályktunar
        Afgreiðsla 1060. fundar bæjarráðs, að senda Alþingi fyrirliggjandi umsögn, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    2.4.    201201428 - Styrkumsókn Icefitness varðandi Skólahreysti 2012
        Afgreiðsla 1060. fundar bæjarráðs, að vísa erindinu til framkvæmdastjóra menningarsviðs til umsagnar og afgreiðslu, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    2.5.    201201456 - Beiðni FMOS til Strætó Bs. um biðstöð strætisvagna við nýja staðsetningu framhaldsskólans
        Erindið var langt fram á 1060. fundi bæjarráðs. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    2.6.    201201491 - Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins
        Afgreiðsla 1060. fundar bæjarráðs, að formaður bæjarráðs sæki málþingið, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    2.7.    201201511 - Erindi stjórnar skíðasvæða höfuðbogarsvæðisins varðandi opnun skíðasvæðis í Skálafelli
        Afgreiðsla 1060. fundar bæjarráðs, að samþykkja viðbótarframlag til að opna mengi skíðasvæðið í Skálafelli, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
        
3.     201201012F - Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar - 188
    Fundargerð 188. fundar fjölskyldunefndar lögð fram til afgreiðslu á 573. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
       
    3.1.    201103425 - Barnavernd, ársfjórðungsskýrslur
        Erindið var lagt fram á 188. fundi fjölskyldunefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    3.2.    201110294 - Félagsþjónusta, ársfjórðungsleg yfirlit
        Erindið var lagt fram á 188. fundi fjölskyldunefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    3.3.    201201387 - Beiðni um fjárstuðning við forvarnarstarf SAMAN-hópsins á árinu 2012
        Afgreiðsla 188. fundar fjölskyldunefndar, að vísa erindinu til afgreiðslu styrkbeiðna 2012, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    3.4.    201201419 - Kostnaðarskiptin sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, vinnureglur
        Afgreiðsla 188. fundar fjölskyldunefndar, varðandi tillögu að vinnureglum um kostnaðarskiptingu sbr. drög III, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    3.5.    201111200 - Erindi Alþingis, umsagnarbeiðni um tillögu til þingsályktunar
        Afgreiðsla 188. fundar fjölskyldunefndar varðandi afgreiðslu á umsögn til bæjarráðs lögð fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
        
4.     201201014F - Fræðslunefnd Mosfellsbæjar - 263
    Fundargerð 263. fundar fræðslunefndar lögð fram til afgreiðslu á 573. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
       
    4.1.    201201410 - Dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10.bekk 2012
        Erindið var lagt fram á 263. fundi fræðslunefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    4.2.    201201411 - Mötuneytismál - frír hafragrautur
        Til máls tóku: JJB, HP, HBA, HS og HP.
Afgreiðsla 263. fundar fræðslunefndar varðandi afgreiðslu á umsögn til bæjarráðs lögð fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    4.3.    201201037 - Frístundafjör haust 2011
        Afgreiðsla 263. fundar fræðslunefndar, að vísa upplýsingum um frístundafjör til íþrótta- og tómstundanefndar, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    4.4.    201112003 - Samstarfssamningur sveitarfélaga við RannUng um rannsóknarverkefni í leikskólum
        Erindið lagt fram á 263. fundi fræðslunefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    4.5.    201201220 - Leikskóladeild Varmárskóla
        Erindið lagt fram á 263. fundi fræðslunefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    4.6.    201201438 - Samantekt um framkvæmd á niðurgreiðslu vistunargjalda
        Erindið lagt fram á 263. fundi fræðslunefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
        
5.     201201017F - Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar - 157
    Fundargerð 157. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til afgreiðslu á 573. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
       
    5.1.    201201113 - Ósk um styrk vegna þáttöku á Olympíuleikum unglinga
        Afgreiðsla 157. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, að vísa erindinu til skrifstofu menningarsviðs, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    5.2.    201112021 - Tillögur af 47. sambandsþingi UMFÍ til sveitarfélaga
        Erindið lagt fram á 157. fundi íþrótta- og tómstundanefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    5.3.    201201487 - Samstarf við ÍSÍ um afreksfólk úr Mosfellsbæ
        Til máls tóku: HSv, HP, HS og JJB.
Afgreiðsla 157. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, um hugmyndir og forsendur fyrir samstarfi við ÍSÍ m.m., samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    5.4.    201201037 - Frístundafjör haust 2011
        Til máls tóku: BH og HS.
Erindið lagt fram á 157. fundi íþrótta- og tómstundanefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    5.5.    201111242 - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2011
        Afgreiðsla 157. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, varðandi tillögu um peningaverðlaun, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar flytur íþróttakarli Kristjáni Þór Einarssyni og íþróttakonu Telmu Rut Frímannsdóttur Mosfellsbæjar 2011 innilegar hamingjuóskir með titilinn og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
 
    5.6.    201108052 - Erindi UMFA varðandi aðstöðumál Aftureldingar
        Erindið lagt fram á 157. fundi íþrótta- og tómstundanefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
        
6.     201201015F - Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar - 313
    Fundargerð 313. fundar skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu á 573. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
       
    6.1.    200911071 - Brattahlíð, fyrirspurn um fjölgun íbúða á parhúsalóðum
        Erindið með skýringum í bókun lagt fram á 313. fundi skipulagsnefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    6.2.    200601077 - Grund við Varmá, lnr. 125419 - deiliskipulag
        Erindið með skýringum í bókun lagt fram á 313. fundi skipulagsnefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    6.3.    200611011 - Aðalskipulag 2009-2030, endurskoðun á AS 2002-2024
        Erindið með skýringum í bókun lagt fram á 313. fundi skipulagsnefndar. Lagt fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    6.4.    201101157 - Árvangur 123614 og spilda 215571 úr Varmalandi, ósk um deiliskipulag
        Afgreiðsla 313. fundar skipulagsnefndar, að fela embættismönnum að ræða við umsækjendur, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    6.5.    201103286 - Æsustaðavegur 6, ósk um breytingar á deiliskipulagi
        Afgreiðsla 313. fundar skipulagsnefndar, að kynna ósk um breytingu á deiliskipulagi fyrir stjórn íbúasamtakanna Víghóls, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    6.6.    201201443 - Braut, Mosfellsdal, ósk um aukna hámarksstærð húss
        Afgreiðsla 313. fundar skipulagsnefndar, að auglýsa umbeðna breytingu á deiliskipulagi, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    6.7.    201201453 - Ósk um að setja niður færanlegt hús á landspildu á Bolavöllum nr. 125415
        Afgreiðsla 313. fundar skipulagsnefndar, að synja umsókninni, samþykkt á 573. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
 
    6.8.    201201455 - Umferðaröryggi í miðbæ Mosfellsbæjar
        Erindinu var frestað á 313. fundi skipulagsnefndar. Frestað á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
        
7.     201201016F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 205
    Fundargerð 205. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 573. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
       
    7.1.    201111213 - Kvíslartunga 4, breyting innanhúss og utan
        Afgreiðsla  205. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
    7.2.    201201458 - Viðbygging til vesturs og innskot.Breyting á þaki yfir bílskúr
        Afgreiðsla 205. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 573. fundi bæjarstjórnar.
 
        
8.     201201426 - Fundargerð 320. fundar Stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
    Fundargerð 320. fundar Stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins lögð fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
        
9.     201201494 - Fundargerð 321. fundar Stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
    Til máls tóku: HSv, BH og JJB.
 
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hvetur önnur aðildarsveitarfélög til þess, líkt og Mosfellsbær hefur þegar gert, að samþykkja aukaframlög til skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins þannig að opna megi skíðasvæðið í Skálafelli.
 
Fundargerð 321. fundar Stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins lögð fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
        
10.     201201431 - Fundargerð 7. fundar Samstarfsnefndar Sambands ísl.sveitarfélaga og Félags skipstjórnarmanna
    Fundargerð 7. fundar Samstarfsnefndar Sambands ísl. sveitarfélaga og Félags skipstjórnarmanna lögð fram á 573. fundi bæjarstjórnar.
        



Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15