263. fundur
Fræðslunefndar Mosfellsbæjar
haldinn að Þverholti 2, 2. hæð Helgafell,
þriðjudaginn 24. janúar 2012 og hófst hann kl. 17:15
Fundinn sátu:
Hafsteinn Pálsson (HP), Eva Magnúsdóttir (EMa), Gylfi Dalmann Aðalsteinsson (GDA), Bryndís Brynjarsdóttir, Kristín Ingibjörg Pálsdóttir (KIP), Bergljót Kristín Ingvadóttir, Helga Jóhanna Magnúsdóttir, Jóhanna S Hermannsdóttir, Karl Ásbjörn Hjartarson, Berglind Bára Hansdóttir, Gunnhildur M Sæmundsdóttir (GMS), Magnea S Ingimundardóttir, Björn Þráinn Þórðarson (BÞÞ).
Fundargerð ritaði: Björn Þráinn Þórðarson, framkvæmdastjóri fræðslusviðs
Dagskrá:
1. 201201410 - Dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10.bekk 2012
Lagt fram.
2. 201201411 - Mötuneytismál - frír hafragrautur
Minnisblað lagt fram.
Lagt til að bæjarráð verði upplýst um kostnaðartölur og málinu vísað þangað.
Jafnframt er því beint til skólanna að kanna áhuga foreldra fyrir málinu í samvinnu við foreldrafélög og/eða skólaráð, hvort sem tilboðið væri frítt eða kostaði.
3. 201201037 - Frístundafjör haust 2011
Upplýsingar um frístundafjör haustið 2011.
Tilboð um frístundafjör er á vegum Aftureldingar í samvinnu við frístundasel Mosfellsbæjar. Á haustönn 2011 sóttu 217 börn frístundafjör eða 77% af heildarfjölda barna á þessum aldri (6 og 7 ára grunnskólanemendur) í Mosfellsbæ.
Upplýsingum um frístundafjör vísað til íþrótta- og tómstundanefndar.
4. 201112003 - Samstarfssamningur sveitarfélaga við RannUng um rannsóknarverkefni í leikskólum
Fræðslunefndin fagnar framlögðum samstarfssamningi.
5. 201201220 - Leikskóladeild Varmárskóla
Lagt fram til kynningar fréttabréf leikskóladeildarinnar að Varmá. Fræðslunefnd þakkar upplýsingar og lýsir yfir ánægju með þetta öfluga kynningarstarf.
6. 201201438 - Samantekt um framkvæmd á niðurgreiðslu vistunargjalda
Lögð fram samantekt um framkvæmd á breyttu fyrirkomulagi á niðurgreiðslum vistunargjalda.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15