313. fundur
Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
haldinn að Þverholti 2, 2. hæð Helgafell,
þriðjudaginn 24. janúar 2012 og hófst hann kl. 07:00
Fundinn sátu:
Bryndís Haraldsdóttir (BH), Ólafur Gunnarsson (ÓG), Erlendur Örn Fjeldsted (EÖF), Jóhannes Bjarni Eðvarðsson (JBE), Jóhanna Björg Hansen (JBH), Ásbjörn Þorvarðarson (ÁÞ), Finnur Birgisson (FB).
Fundargerð ritaði: Ásbjörn Þorvarðarson, byggingafulltrúi.
Dagskrá:
1. 201201016F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 205
Fundargerð lögð fram til kynningar á 313. fundi skipulagsnefndar
1.1. 201111213 - Kvíslartunga 4, breyting innanhúss og utan
Afgreitt á 205. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
1.2. 201201458 - Viðbygging til vesturs og innskot. Breyting á þaki yfir bílskúr
Afgreitt á 205. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
2. 200911071 - Brattahlíð, fyrirspurn um fjölgun íbúða á parhúsalóðum
Lagt fram bréf skipulagsfulltrúa dags. 12.01.2012 til lóðarhafa við Bröttuhlíð, Helga Rúnars Rafnssonar, þar sem honum er tilkynnt að breyting á deiliskipulagi við Bröttuhlíð hafi ekki tekið gildi, en hún var samþykkt í bæjarráði 8. júlí 2010 með þeim fyrirvara að að ganga þyrfti frá samkomulagi milli lóðarhafa og Mosfellsbæjar varðandi gjöld áður en gildistaka gæti farið fram.
Lagt fram.
3. 200601077 - Grund við Varmá, lnr. 125419 - deiliskipulag
Lagt fram bréf skipulagsfulltrúa til eiganda Grundarlands, Þórunnar Kjartansdóttur, þar sem tilkynnt er að deiliskipulag Grundar sem afgreitt var í skipulags- og byggingarnefnd 15. september 2009 hafi ekki tekið gildi, en afgreiðslan fól í sér að nefndin lagði til að skipulagið yrði samþykkt þegar fyrir lægi samkomulag við landeigendur.
Lagt fram.
4. 200611011 - Aðalskipulag 2009-2030, endurskoðun á AS 2002-2024
Lagt fram minnisblað Lex lögmannsstofu dags. 18.01.2012 um skyldur sveitarfélags til gatnagerðar og fráveitu í þéttbýli og tengd málefni.
Lagt fram.
5. 201101157 - Árvangur 123614 og spilda 215571 úr Varmalandi, ósk um deiliskipulag
Tekið fyrir bréf frá Höllu Fróðadóttur dags. 9.01.2012, þar sem ítrekuð er ósk um heimild til að deiliskipuleggja tvær lóðir í Mosfellsdal.
Nefndin felur formanni og embættismönnum að ræða við umsækjendur.
6. 201103286 - Æsustaðavegur 6, ósk um breytingar á deiliskipulagi
Lagður fram endurskoðaður heildaruppdráttur að deiliskipulagi Laugabólslands, þar sem færðar eru inn áður gerðar breytingar og gerð tillaga að breytingum á skilmálaákvæðum um stærð húsa o.fl.
Nefndin samþykkir að tillagan verði kynnt fyrir stjórn íbúasamtakanna Víghóls.
Ólafur Gunnarsson vék af fundi.
7. 201201443 - Braut, Mosfellsdal, ósk um aukna hámarksstærð húss.
Erindi Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts f.h. lóðareiganda, dags. 15.01.2012, þar sem óskað er eftir að leyfð hámarksstærð húss, sem er skv. deiliskipulagi 250 m2, verði aukin í 320 m2.
Nefndin samþykkir að umbeðin breyting á deiliskipulagi verði auglýst, en gert hefur verið ráð fyrir henni í tillögu að breytingum á deiliskipulagi Laugabólslands, sbr. mál nr 6 á dagskrá fundarins.
8. 201201453 - Ósk um að setja niður færanlegt hús á landspildu á Bolavöllum nr. 125415
Inga Þ. Haraldsdóttir óskar 19. janúar eftir því að fá að setja niður 60 m2 færanlegt hús á Bolavöllum vestan Skammadalsvegar, landnr. 125415.
Skipulagsnefnd synjar umsókninni þar sem ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag á svæðinu.
9. 201201455 - Umferðaröryggi í miðbæ Mosfellsbæjar
Lagt fram minnisblað Eflu verkfræðistofu dags. 20.01.2012 um umferð og umferðarhraða í miðbæ Mosfellsbæjar.
Frestað.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09.00