21. fundur
Þróunar- og ferðamálanefndar
haldinn að Þverholti 2, 2. hæð Reykjafell,
fimmtudaginn 12. janúar 2012 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Rúnar Bragi Guðlaugsson (RBG), Haraldur Haraldsson (HH), Júlía Margrét Jónsdóttir (JMJ), Sigurður L Einarsson, Ólafur Ingi Óskarsson (ÓIÓ), Sigurbjörn Svavarsson (SSv), Björn Þráinn Þórðarson (BÞÞ).
Fundargerð ritaði: Björn Þráinn Þórðarson, framkvæmdastjóri menningarsviðs
Dagskrá:
1. 201201224 - Heilsuvörumarkaður í Mosfellsbæ
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir og Pálmi Steingrímsson mættu á fundinn fyrir Heilsuvin og kynntu hugmyndir um heilsuvörumarkað.
Nefndin er málinu hliðholl og óskar eftir því við menningarsvið að vera fulltrúum frá Heilsuvin innan handar við að koma heilsumarkaði á fót.
2. 201201223 - Heilsuár 2012
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir og Pálmi Steingrímsson mættu á fundinn fyrir Heilsuvin og kynntu hugmyndir um að árið 2012 verði heilsuár í Mosfellsbæ.
Nefndin er hlynnt hugmyndinni og vill gjarnan styðja við hana. Nefndin óskar eftir því við menningarsvið að veita Heilsuvin stuðning við að gera verkefnið að veruleika.
3. 201201219 - Kynningarbæklingur um ferðaþjónustu í Mosfellsbæ árið 2012
Lögð fram kynning á áætlun um útgáfu kynningarbæklings um ferðaþjónustu í Mosfellsbæ. Lagt til að hugmyndin verði unnin áfram og síðan kynnt aðilum í ferðaþjónustu.
4. 201108261 - Erindi SSH vegna sóknaráætlunar
Lagt fram með þeim gögnum sem fylgdu málinu í bæjarráði.
5. 201201092 - Fyrirspurn um stuðning og ósk um stuðning þróunar- og ferðamálanefndar við frumkvöðlastarfssemi og nýsköpun
Nefndin leggur til að fengnar verði frekari upplýsingar frá fyrirspyrjanda og jafnframt fengið mat frá 3ja aðila um möguleika verkefnisins. Jafnframt felur nefndin menningarsviði að gera reglur um úthlutun stuðnings við nýsköpunarverkefni.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00