Laus störf
Laus staða félagsráðgjafa í félagsþjónustu við fjölskyldusvið Mosfellsbæjar
Auglýst er laus til umsóknar staða félagsráðgjafa í félagsþjónustu á fjölskyldusviði. Um er að ræða afleysingastarf frá 1. maí 2010 til 1. september 2011. Umsækjandi þarf að hafa lokið prófi í félagsráðgjöf og hafa reynslu af vinnu við félagsþjónustu.
Starfið gerir kröfu um frumkvæði, skipulagshæfileika og hæfni til samvinnu. Laun eru skv. kjarasamningi Félagsráðgjafafélags Íslands og Launanefndar sveitarfélaga. Í samræmi við jafnréttisstefnu Mosfellsbæjar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknir berist skriflega til fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eigi síðar en 15. mars 2009.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Erla Þóroddsdóttir, verkefnastjóri félagsþjónustu Mosfellsbæjar, og Unnur V. Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar, í síma 525-6700.
Laust starf við leikskóladeild Lágafellsskóla í Mosfellsbæ
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi þar sem einkunnarorðin samvera, samvinna og samkennd eru höfð að leiðarljósi?
Leikskóladeild Lágafellsskóla er ætluð fimm ára börnum og starfar í samvinnu við 1. og 2. bekk grunnskólans. Á leikskóladeildinni er unnið eftir aðalnámskrá leikskóla og eru samskipti, læsi og talnaskilningur ásamt einkunnarorðum Lágafellsskóla höfð til hliðsjónar starfinu.
• Óskum eftir að ráða starfsmann í 100% starfshlutfall frá 1. mars til 12. júlí. Möguleiki á áframhaldandi ráðningu. Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun er æskileg.
Laun samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir sendist á netföngin
efemia[hja]lagafellsskoli.is eða
arnamaria[hja]lagafellsskoli.is
Upplýsingar veita : Efemía Gísladóttir í síma 5259200 eða 6185149 og Arna María Smáradóttir síma 849 4218.
Umsóknarfrestur er til 26. febrúar.
Vertu með!