Ritun
Saga Mosfellsbæjar skrifuð.
Nú er hafin ritun á sögu Mosfellsbæjar, í byrjun febrúar 2003 voru Bjarki Bjarnason og Magnús Guðmundsson,
ráðnir
til að skrifa sögu sveitarfélagsins frá landnámi til loka 20. aldar.
Aðgangur að góðum heimildum er ein meginforsenda fyrir ritun slíkrar
sögu. Víða um land, þar sem slíkar byggðarsögur hafa verið teknar
saman, hafa héraðsskjalasöfnin verið drýgsti heimildabrunnur
sagnaritara. Af því tilefni hefur verið komið á átaki í að safna
sögulegu efni hingað til safnsins s.s.myndum, skjölum og öllu því sem
varpar ljósi á sögu svæðisins.
Þau ykkar sem eiga skjöl sem með
einhverjum hætti tengjast félagsstarfi í sveitinni, s.s. ljósmyndir frá
Leikfélaginu, viðurkenningar frá Ungmennafélaginu Aftureldingu eða
dreifibréf frá pólitískum flokkum mættu gjarnan láta vita af slíku.
Eitt
lítið bréf eða ein ljósmynd getur komið að góðum notum, að ekki sé
talað um umfangsmeiri heimildir. Hægt er að semja um skilyrði fyrir
afhendingu á skjölum til héraðsskjalasafnsins, setja takmörk fyrir
skoðun gagna eða tryggja að þau séu innsigluð í tiltekinn árafjölda.
Unnt
er að hafa samband við safnið alla daga vikunnar frá kl. 9-14, eða
eftir samkomulagi. Safnið er opið tvo daga í viku fyrir safngesti,
þriðjudaga og miðvikudaga kl. 10-12, en unnt að semja um annan tíma ef
skjalavörður er á staðnum.