Viðbrögð við öskufalli

Samræmd viðbrögð vegna öskufalls og öskufjúks

Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa samræmt aðgerðir og viðbrögð vegna svifryksmengunar vegna öskufalls og öskufjúks á höfuðborgarsvæðinu og jafnframt virkjað viðbragðsáætlanir sínar.

Viðbragðsaðilar og viðeigandi stofnanir á svæðinu eru meðvitaðar um stöðu mála og fylgjast grannt með breytingum sem kunna að verða með veru sinni í Samhæfingarstöð almannavarna.  Tryggt verður að allar starfseiningar sveitarfélaganna fái ítarlegar upplýsingar verði öskufall á svæðinu.

Sveitarfélögin hafa einnig virkjað þá aðila hjá sér sem fylgjast með loftgæðum allan sólarhringinn í gegnum fimm mælistöðvar á höfuðborgarsvæðinu.  Ennfremur fylgist eftirlitið vel með vatnsbólum, en talið er ólíklegt að neysluvatn spillist þótt aska berist yfir svæðið. Sérstaklega er fylgst með gangi mála í skólum og leikskólum og upplýsingar um viðbrögð þeirra vegna öskufalls er að finna á heimasíðum viðkomandi skóla og sveitarfélags.

Allir viðbragðsaðilar og stofnanir á svæðinu eru meðvitaðir um stöðu mála og fylgjast grannt með breytingum. Mikilvægt er að íbúar höfuðborgarsvæðisins treysti því og haldi ró sinni. Íbúar eru jafnframt hvattir til fylgjast vel með fréttum og kynna sér upplýsingar og leiðbeiningar á heimasíðu Almannavarna, www.almannavarnir.is og heimasíðu landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is