Félagslegt leiguhúsnæði
Markmið með úthlutun félagslegra leiguíbúða er að veita þeim
fjölskyldum og einstaklingum úrlausn í húsnæðismálum, sem ekki eru
færir um það sjálfir. Úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis er einungis
ætlað að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn.
Almenn skilyrði fyrir úthlutun leiguíbúða eru:
- Umsækjandi
sé búsettur í Mosfellsbæ og hafi verið það sl. 12 mánuði þegar umsókn
er tekin til afgreiðslu fjölskyldunefndar. Heimilt er þó að víkja frá
þessari reglu við mjög sérstakar og óvenjulegar aðstæður.
- Umsækjandi sé ekki í vanskilum við stofnanir bæjarfélagsins eða fyrirtæki.
Félagslegar leiguíbúðir í Mosfellsbæ eru 30.