Lögreglan í Mosfellsbæ ( lögreglustöð 4)
Frá lögreglustöðinni að Krókhálsi 5 er sinnt verkefnum í Mosfellsbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Árbæ, Norðlingaholti, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi. Þar eru bæði rannsóknarsvið og almennt svið en átta rannsóknarlögreglumenn starfa á lögreglustöðinni.
Helstu stjórnendur eru Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Eggert Ól. Jónsson aðalvarðstjóri og Einar Ásbjörnsson lögreglufulltrúi. Árni Þór er jafnframt stöðvarstjóri.
Íbúar Mosfellsbæjar njóta eins og aðrir íbúar á höfuðborgarsvæðinu þjónustu öflugra rannsóknardeilda og tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar kemur að rannsóknum stærri og flóknari sakamála. Þá er umferðardeild embættisins sýnileg í Mosfellsbæ við almennt umferðareftirlit.
Sólarhringslöggæsla er á höfuðborgarsvæðinu alla daga ársins en rannsóknardeildin er opin á virkum dögum frá kl, 08:00 til 16:00. Ef óskað er eftir aðstoð lögreglu ber að hringja í 112.
Fróðleik og upplýsingar að finna á heimasíðu lögreglunnar,
www.logregla.is