FaMos

Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni, FaMos, var stofnað 1. október 2002 fyrir íbúa Mosfellsbæjar og nágrennis 60 ára og eldri. 

Markmið félagsins er að gæta hagsmuna eldri borgara hér í bæjarfélaginu og nágrenni.  Gefin eru út félagsskírteini sem gefa félögum kost á verulegum afslætti hjá mörgum verslunum og stofnunum.

Félagið hefur skrifstofu á 2. hæð í Hlégarði  þar sem stjórnarmenn eru til viðtals fyrsta og þriðja miðvikudag hvers mánaðar milli kl. 17.00 og 18.00 frá september til maí. 

Gönguhópur er starfræktur undir stjórn Eyvindar Péturssonar. 
Gengið er alla laugardaga kl. 11.
Lagt af stað frá Hlégarði og að göngu lokinni drekkur hópurinn saman kaffi.

Vatnsleikfimi fyrir félaga FaMos verður í Lágafellslaug og hefst Þriðjudaginn 10.janúar 2012
Kennari er Kristín Einarsdóttir íþróttakennari. 

Um er að ræða 10 vikna námskeið tvisvar í viku: þriðjudaga kl. 11:20 – 12:00 og fimmtudaga kl. 08:10 – 08:50
Þátttökugjald fyrir tímabilið er kr. 2.000 einu sinni í viku og kr. 4.000 tvisvar sinnum í viku. 

Vinsamlegast mætið snemma í fyrsta tíma svo ráðrúm gefist til að ganga frá greiðslu.

Boccia fyrir félagsmenn FaMos hefst í Íþróttahúsina að Varmá miðvikudaginn 11. janúar 2012 og verður einu sinni í viku næstu 12 vikur á miðvikudögum kl. 10:45- 12:00
Þátttökugjald er kr. 2.000  og greiðist í fyrsta tíma.

Opið hús eða menningarkvöld verða annan mánudag í hverjum mánuði í Hlégarði
Fyrsta menningarkvöldið 2012 verður þann 16. janúar kl.20.00

 auglýst dagskrá


FaMos sendir félögum sínum fréttabréf 2-3  á ári þar sem kynnt er dagskrá menningarkvölda vetrarins og það sem efst er á baugi hverju sinni.

Farið er í dagsferð á hverju vori og árleg þátttaka í bæjarhátíðinni  Í túninu heima.

__________________________________________________


STJÓRNIR OG NEFNDIR

Stjórn félagsins skipa frá síðasta aðalfundi:

Ragnheiður Stephensen formaður 566 6102 / 897 7639 
María Guðmundsdóttir varaform  566 6223 / 861 8170 
Guðrún Esther Árnadóttir  ritari 566 6798 / 845 9713 
Sigrún Sigurðardóttir gjaldkeri 566 6536
Karl E Loftsson   meðstjórnandi  566 8128 
Gréta Aðalsteinsdóttir  varamaður  566 8911 / 692 3939 
Birgir D. Sveinsson varamaður 566 6174 / 862 9431 


Starfandi nefndir og hópar í vetur eru:

Menningarnefnd:
Birgir D. Sveinsson
Grétar Snær Hjartarson
María Guðmundsdóttir
Sigurður Hreiðar
Svala Árnadóttir

Kaffinefnd:
Bjarney Einarsdóttir
Guðrún Pálsdóttir
Halla M. Hallgrímsdóttir
Ljósbjörg Magnúsdóttir
Sigrún Stella Guðmundsdóttir
Úlfhildur Geirsdóttir

Íþróttanefnd:
Auður Sveinsdóttir
Helga Friðriksdóttir
Ólafur Gunnarsson
Sigríður Kjartansdóttir
Sigríður Óskarsdótttir
Ferðanefnd:
Gréta Aðalsteinsdóttir
Jón Þórður Jónsson
Karl Loftson
Gönguhópur:
Eyvindur Pétursson