VIÐBURÐADAGATAL

<september 2010>
mþmffls
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930   
       
Frá 13.05.2010 04:28 til 16.05.2010 05:28

MOSÖLD 2010 Íslandsmót öldunga í blaki

35. Íslandsmót öldunga í blaki fer fram að Varmá 13-15 maí. Von er á 800-1000 manns í bæinn þessa helgi og verður spilað á samtals 9 blakvöllum í íþróttahúsinu að Varmá. Til að vera löglegur öldungur verður viðkomandi að vera 30 ára á árinu þannig að keppendur eru á aldrinum 30-75 ára. Keppt er í flokki öldunga sem er 30-40 ára, í flokki öðlinga sem er 40-50 ára og í flokki ljúflinga sem eru 50 ára og eldri. Formaður Blakdeildar Aftureldingar, Guðrún K Einarsdóttir er Öldungur mótsins og ábyrgðaraðili. Blakdeild Aftureldingar sér um mótið og skipuleggur skemmtanir í sambandi við mótið ásamt því að útvega mannskapnum gistingu á meðan á móti stendur. Laugardaginn 15. maí verður síðan verðlaunaafhending og Íslands- og deildarmeistarar krýndir. Um kvöldið verður slegið upp lokahófi með mat og balli fyrir ca 700 manns. Afturelding sendir 4 lið á mótið. Upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu mótsins: http://mosold.is/

Sviðin

Sviðin Sviðin

Stofnanir

Stofnanir Stofnanir

Fundargerðir

Fundargerðir Fundargerðir