VIÐBURÐADAGATAL

<september 2010>
mþmffls
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930   
       
Frá 17.03.2010 08:00 til 17.03.2010 10:00

Aðalfundur Knattspyrnudeildar

Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn í Lágafellsskóla miðvikudaginn 17. mars n.k. kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf skv. reglugerð deilda auk gestafyrirlesara. Knattspyrnudeild óskar eftir metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til að bjóða sig fram sem formann deildarinnar en innan hennar starfa þrjú ráð, meistaraflokksráð karla, meistaraflokksráð kvenna og barna- og unglingaráð. Í ráðunum starfar stór og samhentur hópur duglegra sjálfboðaliða sem sjá um rekstur hverrar einingar fyrir sig. Formaður Knattspyrnudeildar Aftureldingar er sameiningartákn hennar, berst fyrir hagsmunum deildarinnar, stýrir samráðsfundum og sér um samskipti fyrir hönd deildarinnar s.s. við aðalstjórn félagsins og KSÍ. Formaður mun EKKI þurfa að stunda fjáraflanir. Tilvalið tækifæri til að taka þátt í mikilvægu forvarnarstarfi og að hafa áhrif á það umhverfi sem við viljum bjóða börnum og ungmennum bæjarins. Brennandi áhugi á knattspyrnu og uppbyggingu hennar í Aftureldingu nauðsynlegur. Nánari upplýsingar hjá Gyðu framkvæmdastjóra Aftureldingar í s. 566 7089.
Fyrir hönd Knattspyrnudeildar Aftureldingar Áfram Afturelding!
Kolbrún Þorsteinsdóttir, formaður BUR
Hallur Birgisson, formaður mfl ráðs kvenna
Hilmar Bergmann, formaður mfl ráðs karla

Sviðin

Sviðin Sviðin

Stofnanir

Stofnanir Stofnanir

Fundargerðir

Fundargerðir Fundargerðir