Frá 21.03.2010 04:00 til 21.03.2010 05:30
Kórar í Mosfellsbæ halda tónleika
Kórar í Mosfellsbæ halda tónleika. Átta kórar í Mosfellsbæ halda sameiginlega tónleika í Kjarnanum í Mosfellsbæ sunnudaginn 21. mars kl. 16:00. Einstakt sönglíf ríkir í Mosfellsbæ og fá sveitafélög státa af jafnríkri kórastarfsemi. Markmiðið með tónleikunum er að veita athygli að þessu mikla kórstarfi í bæjarfélaginu, leyfa almenningi að kynnast fjölbreyttri starfsemi kóranna og efla samstarf á milli þessara söngaðila. Í Mosfellsbæ eru starfræktir tveir barnakórar, tveir kvennakórar, sex blandaðir kórar og tveir karlakórar, þó svo Kjalnesingar telji til annars sveitafélags koma margir félagsmanna þeirra úr Mosfellsbæ og eru eins og bræður okkar. Kórarnir sem taka þátt í tónleikunum eru: Álafosskórinn kórstjóri Helgi R. EInarsson , Barnakór yngri deildar Lágfells- og Varmárskóla kórstjóri Berglind Björgúlfsdóttir, Kammerkór Mosfellsbæjar kórstjóri Símon H. Ívarsson, Karlakór Kjalnesinga kórstjóri Páll Helgason, Mosfellskórinn kórstjóri Vilberg Viggósson, Skólakór Varmárskóla kórstjóri Guðmundur Ómar Óskarsson, Stefnir kórstjóri Gunnar Ben og Vorboðarnir kórstjóri Páll Helgason. Þegar átta kórar leggja saman hesta sína þá má búast við mjög fjölbreyttum tónleikum. Á efnisskránni verða lög frá ýmsum heimshornum, allt frá endurreistnartónlist fram til dagsins í dag og verður efnisskrán einstaklega fjölbreytt.